Réttur


Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 49

Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 49
R É T T U R 113 kostur að þær hefðu alls ekki verið á eynni, er enginn efi á því að cryggissveitir ríkisstjórnarinnar hefðu verið búnar að koma ó friði og ró fyrir löngu. Brezku hersveilirnar skárust í leikinn á Kýpur um jólaleytið undir því yfirskyni að þær vildu binda endi á blóðsúthellingar. En í rauninni studdu þær tyrknesku öfgamennina í einu og öllu. At- bafnir brezku hersveitanna höfðu þann tilgang að koma ó laggirnar eins konar tyrknesku ríki í því skyni að fá síðar átyllu til að skipta eynni. Því fer fjarri að þær hafi aðstoðað Kýpurstjórn við að koma á eðlilegu ástandi, ró og reglu á nýjan leik; þær hafa í staðinn komið í veg fyrir að lögregla og her eyjarinnar gæli gegnt skyldustörfum sínum. Vopnahléssamningur sá sem gerður var í Nikosíu eftir jólaatburð- ina gerði ráð fyrir því að tyrkneskar og grískar liðssveitir á eynni hyrfu aftur til herbúða sinna. Grísku 'hersveitirnar uppfylltu þennan skilmála þegar daginn eflir að samkomulag hafði náðst, en tyrk- nesku sveitirnar héldu áfram iðju sinni í noröurhluta Nikosíu, og brezki hershöfðinginn sem stjórnar grísku og tyrknesku sveitunum hefur ekki enn gefið neina skýringu á þessu sanmingsrofi. „Græna línan“, en svo nefna Bretar mörkin milli grísku og tyrk- nesku borgarhlutanna í Nikosíu, er í rauninni notuð til að vernda öfgamenn og fela glæpi þeirra. Spurning: Hver er skoðun ykkar á hlutverki því sem hersveitir Sameinuðu þjóðanna eiga að gegna á Kýpur? Svar: Kýpur fór ekki fram á það að sent yrði alþjóðalið og þarf ekki á slíku liði að halda lil þess að tryggja innanlandsöryggi sitt. Ognunin við Kýpur kemur ekki innan frá heldur utan að. En fyrst sú hugmynd kom upp að senda lið frá Sameinuðu þjóðunum til eyjarinnar og jrar sem tyrkneski minnihlutinn á Kýpur taldi dvöl þessa liðs nauðsynlega fyrir öryggi sitt, féllust Kýpurbúar á þá til- lögu til þess að sýna tyrkneska þjóðarhrotinu velvilja sinn. En at- hafnir liðssveita Sameinuðu þjóðanna verða að takmarkast við jjað að aðstoða stjórnina á Kýpur við að koma á ró og friði á eynni á nýjan leik. Aðalábyrgöin hvílir á stjórn Kýpurs, eins og lögð er áherzla á í ályktunum öryggisráðsins. Liðssveitir Sameinuðu þjóð- anna eiga þannig einvöröungu að vera hjálparsveitir, og brjóti þær á nokkurn hátt í bága við fullveldisréttindi Kýpurs og verksvið Kýpurstjórnar niunu þær mæta eindreginni andstöðu Kýpurbúa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.