Réttur


Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 57

Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 57
R E T T U R 121 íræðilegir, heldur og í mesta máta raunhæfir, svo sem hefur sýnt sig í stórum hluta heimsins nú um skeið. Þetta tvennt: þjóðfélagsleg verkaskipting og eignarréttarleg ein- angrun framleiðendanna eru að vísu skilyrði vöruframleiðslunnar, en eitt þarf enn að koma til, svo að vöruframleiðslan verði kapítal- ísk, eða auðvaldsþjóðfélagið sé fullkomnað. Það er að vinnuaflið vcrði að vöru. Til þess þarf að svipta allan almenning yfirráðum yfir framleiðslutækjum og þeir þurfa að vera frjálsir, þ. e. sjálfum sér ráðandi. Hið fyrra gerist m. a. með hinum óskajrlegu fólks- flutningum úr sveitum í bæi, sem við hérlendis höfum lifað á fyrri hluta þessarar aldar. Hið síðara er þáttur í hinu marglofaða frelsi auðvaldsþjóðfélagsins, sem óþarfi er að fjölyrða um. Arðránið er ekki aðeins rökfræðileg niðurstaða af hugleiðingum um vinnuna sem hlutkennda og almenna vinnu í grundvelli vöru- skiptaferils. Arðránið er lifandi staðreynd hvers auðvaldsþjóðfé- lags. Efnahagslíf þess stjórnast af gróðakapphlaupi þeirra manna, sem framleiðslutæki og fjármagn eiga, eftirsókn þeirra í gildisauka. Það má ekki villa sýn, að gildisaukinn tekur á sig ýmsar myndir, svo sem „hagnaður færður á höfuðstól“, eins og það er orðað í bókfærslu, vextir, hluthafaarður, ýmiss konar leiga, söfnun í sjóði o. s. frv. Uppspretta gildisaukans er ætíð hin sama: umframvinna verkafólks, sú vinna sem atvinnurekendur horga ekki fyrir. Af þessu leiðir mjög ljóslega, að í kapitalísku þjóðfélagi eru tvær höfuðstéttir, kapítalistar sem eigendur framleiðslutækja og annars auðmagns, hins vegar verkafólk, sem ekki á neitt til að lifa af nema selja vinnuafl sitt. Milli þessara höfuðstétta er hin gapandi mótsögn arðránsins, því að verkafólk neyðist til að gefa kapítalist- um gildisaukann til ráðstöfunar. Allar tekjur þjóðfélagsins — þjóðartekjurnar — eru til orðnar af vöruframleiðandi vinnu verka- fólksins. Það er verkalýðnum í hag að afnema þær aðstæður, sem gera fjölmennum hópum fólks kleift að lifa á gildisauka. Við þá umbytingu þjóðfélagsins sem felst í afnámi þessara aðstæðna, fengi verkalýðurinn sjálfur full yfirráð yfir ávöxtum vinnu sinnar, bæði í gildisformi þeirra, þ. e. sem lekjur, og í notagildisformi þeirra, þ. e. sem þjóðarframleiðslu. Því hefur þegar verið lýst, hvernig vinna við vöruframleiðslu er almenns eðlis, framkvæmd í þágu alls þjóðfélagsins. Höfuðmót- setning kapítalískrar vöruframleiðslu er einmitt þetta, að fram- ieiðslustörfin eru félagslegs eðlis, unnin í þágu heildarinnar, en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.