Réttur


Réttur - 01.01.1965, Page 7

Réttur - 01.01.1965, Page 7
K E T T U R 7 Aloima er hættur að vinna. Hann er ekki lengur svangur. Hvíti íáninn táknaði það, að enn eitt barn hefði bætzt í þann óteljandi hóp Ameríkana, sem verða Iiungurdauðanum að bráð. Hann var aðeins sex ára, en í honum bjó aldagamalt hungur. Líf hans hafði verið einskis metið, og sem dáinn var liann heldur ekki reiknaður með. Orlög hans eru örlög þjóðar hans. TIL LESENDA RÉTTAR Nú hefst nýr árgangur Réttar og tíinamót í sögu hans nálg- ast. Á þessu ári eru liðin 50 ár síðan sá ágæti brautryðjandi Þórólfur Sigurðsson, bóndi í Baldursheimi, aðalútgefandi og ritstjóri Réttar í 10 ár, dagsetti ávarp það, er Réttur hófst með, en það var dagsett 1. des. 1915 á Akureyri, þó 1. árgang- urinn teldist síðan 1916. „Réttur“ er þvi brátl liálfrar aldar gamall, þó árgangar séu aðeins 48, því tveir féllu úr, 1945 og 1956. Fyrir um það bil 40 árum tóku marxistar í gamla Alþýðuflokknum meir og meir við ritinu, í árgangana 1924 og 1925 rituðu þeir allmikið og 1926 tóku þeir við Rétti og þar með núverandi ritstjóri. Það væri því áslæða til að hinir góðu og tryggu lesendur Iléttar minntust hans rækilega á þessum tímamótum með því að ræða við kunningja sína uin hann og útvega honum nýja kaupendur. „Réttur“ hefur eflst nokkuð síðustu árin, aukið fjölbreytni og komið oftar út: 1962 finnn hefti (1., 2., 3.—4., 5.—6., 7.) alls 336 blaðsíður, 1963 þrjú liefti (1., 2., 3.—4.) alls 216 blaðsíður, og 1964 fjögur hefti (1., 2., 3., 4.,) alls 256 blaðsíður. Réttur þarj að ejlast enn og helzt koma oftar út og stœkka jafnliliða því sem vandað yrði meira tU efnis lians. En forsenda alls þessa er aukin útbreiðsla. „Rétt- ur“ heitir því á hvern lesenda sinn að gera það, sem hann getur til þess að útbreiða hann. Afgreiðslan mun með ánægju senda nokkur hefti ókeypis til nýrra áskrifenda til reynslu, svo og láta síðustu 1—2 árganga fylgja sem kaupbæti fyrir þá, sem verða fastir áskrifendur strax. Ritstj.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.