Réttur


Réttur - 01.01.1965, Qupperneq 34

Réttur - 01.01.1965, Qupperneq 34
34 RÉTTUR líka að baráttuþreki og er ein merkasta kona íslenzkrar verkalýðs- hreyfingar. Verkfallsvarzlan var á Torfunefsbryggju, en hún var líka við hvern glugga og hverjar dyr vinnandi fólks um allan bæ, þar var vakað nótt og dag og fylgzt með öllum hreyfingum andstæðinganna. I þessu verkfalli þurfti mikla þrautseigju og heita hugi. Veturinn var óhlífinn í sínum framgangi, svo það var stundum kalt á verðinum, og það gat verið erfitt að rífa sig upp á nóttunni út í hríðina, þar sem svefntíminn var oft alltof skammur, flensan lagði svo marga í rúmið. í Verkalýðshúsinu við Strandgötuna voru margir fundir haldn- ir þessa daga til að skýra gang deilunnar, húsfyllir var á hverjum þessarra funda og við bar, að þangað komu gestir að ræða málin og var þeim öllum vel tekið. Einn daginn kom t. d. menntaskóla- kennari á fundinn og með honum 20 nemendur úr skólanum, kenn- arinn yfirgaf húsið eftir að hann hafði sannfærzt um, að verkamenn höfðu langsýnni sjónarmið en dægurbaráttuna eina og mundu aldrei láta af kröfum sínum, aðeins einn sveinanna fylgdi honum til dyra, hinir vildu fræðast meir um deiluna og sátu eftir í húsi verkalýðsins og var það góðspá deilunnar. Alla daga var kröfu- gangan troðin í vetrarsnjóinn, menn neituðu að lilýða rödd ýmsra góðra borgara, sem töluðu um sátt á hálfan hlut, en höfðu þann leiðarhnoða einan, sem stefndi að réttlæti í samskiptum manna, en það fólk, sem nýgengið var undan kúgunarvendi aldanna, vissi fullvel, að því aðeins ríkir það réttlæti, að fólkið standi saman í haráttunni og sýni samtakamáttinn í verki. í þessarri deilu kynntist ég félögum mínum nánar en áður og her síðan til þeirra þann hlýhug, sem ekki verður frá mér íekinn. Og aldrei hafði ég skilið svo vel, hvað forusta Kommúnistaflokks- ins þýddi fyrir verkalýðshreyfinguna. Kúgararnir voru ekki leng- ur einráðir. Og kannski hefi ég aldrei skilið betur en þá, hvaða áhrif rússneska byltingin hafði á verkalýðsharátlu alls heimsins, þegar áhrifanna gætti á þeim hjara veraldar, þar sem smáhær klúkir í vetrarríki með verkfallsverði á klakastorkinni ]>ryggju nótt og dag til að berjast fyrir rétllæti í veröldinni. Ég hjó í yzta jaðri kaupstaðarins, það voru því engar slóðir að rekja á morgnana, þegar ég lagði af stað á verkfallsvörðinn kl. 3 á hverjum morgni, stundum var náttmyrkrið þrúgað af snjókomu og færðin var aldrei góð, en sú skylda, sem kallaði, var ofar ann-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.