Réttur - 01.01.1965, Blaðsíða 44
EINAR OLGEIllSSON:
Lýðræði og auðvaldsskipulag
Ein höíuðlygi auðvaldsins á vorum tímum er, að auðvaldsskipu-
lag og lýðræði sé eitt og hið sama. Á þessari blekkingu byggist
mest allur áróður auðva)dsins nú ú tímum.
I3að er ekki til hættulegri og fráleitari blekking. Auðvaldið veit,
að það er nú hatað um heim allan. Þess vegna reynir það að fela
sig, skrímslið, l)ak við grímu Jýðræðisins.
En þetta tvennt eru andstæður.
Auðvaldsskipulagið er í heiminn borið „í blóði og sorpi.“ Ferill
þess um allar jarðir er blóðferill barna, myrtra með vinnuþrælk-
un í verksmiðjum, kvenna, seldra eða sveltra í hel, þrælkaðra verka-
manna, er skapað hafa óhemju auð nútímans. Saga auðvaldsins
er saga óréttlátra styrjalda, undirokunar alls heims undir nokkra
gráðuga auðhringa Evrópu og Ameríku. Glæpaferill þess hófst
með þjóðarmorðunum á Indíánum og náði hámarki sínu í dauða-
búðum Auswitz og atommorðunum í Hirosima.
Lýðræðið, — hreyfing fólksins til frelsis, mannréttinda og yfir-
ráða, — er andstæða þessa auðvalds. Öll barátta fyrir almennum
kosningarétti var liáð gegn auðmannastéttinni og borið fram til
sigurs af verkalýðsstéttinni. En það er aðeins í nokkrum af auð-
valdslöndum heims, sem slíkt „borgaralegt lýðræði“ hefur verið
knúið fram. I þorra þeirra landa, sem auðvald enn ræður yfir,
beitir það harðstjórn og einræði til þess að halda yfirrúðum sín-
um: í Mið- og Suður-Ameríku, á Spáni, í Portugal og Tyrklandi,
í Suður-Vielnam og Suður-Koreu, í nýlendum sínum í Asíu og
Afríku, — og í auðvaldslöndum Evrópu er m. a. s. borgaralega
lýðræðið víða af skornum skainmti, svo sem í Vestur-Þýzkalandi,
Frakklandi og Grikklandi. Og í Bandaríkjunum, einu brautryðj-
cndalandi borgaralegs lýðræðis, er frelsis- og mannréttindabar-
átta negranna nú ólygnust raunin um réttindi almennings.
En í þessum auðvaldslöndum „borgaralegs lýðræðis“ er skoðana-