Réttur


Réttur - 01.01.1965, Side 21

Réttur - 01.01.1965, Side 21
K É T T U 11 21 er allir aðrir brugðust eða þögðu. Hvað eítir annað hefur þó tekizt að mynda allbreiða samfylkingu gegn hernáminu. Og nú síðustu árin er það starf, sem Samtök hernámsandstæðinga vinna, bið þýðingarmesta fyrir þjóðina og verðskuldar stuðning allra góðra Islendinga. Sérslaklega er það mikilsvert, að leggja nú sem ríkasta áherzlu á þjóðfrelsisbaráttuna, þar sem næstu alþingis- kosningar, í síðasta lagi 1967, munu útkljá það, hvort ísland lekur þátt í að framlengja tilveru Atlanzhafsbandalagsins eða þátttöku sína í því 1969, ef það þá sjálft lifir núverandi kreppu- tíma sína af. Jafnframt hernáminu hefur hættan á því, að erlendu einkafjár- magni takist að ná aðstöðu til beinnar þátttöku í íslenzku at- vinnulífi farið örl vaxandi síðustu árin. Sterk öfl innan ríkisstjórnarflokkanna vinna skipulega að því, nð erlend auðfyr.irtæki fái leyfi til að reisa og reka hér alúmin- íumverksmiðj u og olíubreinsunarstöð. Augljóst er, að með slíkum í'ekstri yrði brautin rudd fyrir erlent einkafjármagn lil þess að komast í síauknum mæli inn í íslenzkt atvinnulíf. Tvær aðalástæður eru til þess, að barizt er fyrir þátttöku er- lendra auðfélaga í atvinnurekstri hér á landi. Önnur er mögnuð vantrú á íslenzkum atvinnuvegum og getu peirra til að standa undir vaxandi tekjuþörf þjóðarinnar. Vantrú þessi hefur skýrast komið fram hjá efnahagsráðunautum ríkis- stjórnarinnar, sem beinlínis hafa sagt, að liinir göndu atvinnu- vegir þjóðarinnar, sjávarúlvegur með fiskvinnslu, landbúnaður og iðnaður fyrir innlendan markað, geti ekki veitt nægilegt svig- rúm til þeirra efnahagsframfara, sem stefna beri að. Hin ástæðan er áhugi ýmissa gróðahyggjumanna, sem gera sér miklar vonir uin auðfenginn gróða, sem umboðs- og þjónustu- menn hinna erlendu auðhringa. Reynslan hefur þegar sýnt, að mat efnahagsráðunauta ríkis- stjórnarinnar á framleiðslugetu íslenzkra atvinnuvega er alrangt. Frmleiðsluaukningin hefur farið langt fram úr áætlun þeirra og vöxtur þjóðartekna hér á landi hefur verið meiri nú um skeið t'n í flestum nálægum löndum. Enn eru þó að rnestu ónotaðir allir þeir miklu möguleik- ar íslenzkra atvinnuvega, sem lengdir eru jullvinnslu, bœði sjávarajurða og landbúnaðarvara. Auka mœtti jramleiðslu-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.