Réttur


Réttur - 01.01.1965, Qupperneq 32

Réttur - 01.01.1965, Qupperneq 32
32 R É T T U R þegar mættir, þeir voru hlýlega klæddir og virðulegir í fasi og aJltaf fjölgaði fólkinu. Verkfallsmenn, í snjáðum fötum með ullarvettlinga og niður- dregnar húfur, rjátluðu til og frá og börðu sér, jreir voru eitthvað svo ákveðnir í taktlausum hreyfingum, að frakkamenn hliðruðu sér hjá að líta niður á Jjá eins og þó var venja, þessir fátæku at- vinnuleysingjar í verkfalli voru eitthvað stærra en jaá hafði grun- að, það var næstum ómögulegt að taka einn og einn þeirra tali, og þeir úr hópi verkamanna á bryggjunni, sem frakkamenn töldu sig næstum eiga, voru komnir upp að hlið verkfallsmanna. Bryggjan var full af fólki og í foftinu var einhver spenna svo snjókornin áttu erfitt með að falla til jarðar og menn voru á sí- íelldu rölti. Mest bar á verkafólkinu, enda voru Verkamannafélag Akureyrar og Verkakvennafélagið Eining mætt sem fulltrúar og íorustukraftar verkalýðsins á Torfunefsbryggjunni. A vörubíls- palli stóðu nokkrir menn og jrar á meðal formaður Verkamannafé- lagsins, Steingrímur Aðalsteinsson, sem ávarpaði nú bryggjufólk- ið og lýsti yfir afgreiðslubanni félagsins á skipið á meðan ekki væri samið við félagið og hvetur hann allt verkafólk á Akureyri til að standa fast saman um Jjá ákvörðun. Af sama bílpalli töluðu jjeir jón Rafnsson og Þóroddur Guð- mundsson, landsþekktir verkalýðsforingjar, sem komnir voru til liðs við verkfallsmenn og áttu sinn })átt í, hve öll skipulagning var á traustum grunni reist. En á Torfunefsbryggju voru einnig mættir liðsmenn hæjarstjórn- ar með bæjarfógeta í broddi fylkingar, og leyndi sér ekki, að verka- mönnum var hugsuð þegjandi J)örfin. Þessir menn voru ekki komn- ii til að veita þeim snauðu vinnu eða brauð og ekki til að aðstoða verkafólkið í haráttunni, en háru utan á sér líLÍlsvirðandi óvild lil þess fólks, sem neytir síns hrauðs í sveita síns andlits, hér fóru stríðsmenn auðvaldsins. Bæjarfógetinn hampaði lagahók í nafni konungs Danmerkur og Islands og las í heyranda hljóði hótanir um fésektir og fangelsis- vistir, í nafni konungs skipaði hann verkamönnum hurt af bryggj- unni en öðrum að hefja vinnu. Þegar sýnt var, að hverju stefndi, að bæjarfógetinn hugðist ryðja bryggjuna með J)eim málaliðum, sem tekizt hafði að smala saman og æsa nægilega upp gegn verkafólkinu, þá J)jöppuðu verka- mennirnir sér saman við skipshliðina og mætlu J)ar hvílliðunum,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.