Réttur - 01.01.1965, Blaðsíða 42
42
R E T T U K
íbúðir, blóm og aðrir fagrir hlutir fyrirfundust ckki handa okkur.
Fyrsta heimilið okkar var lierbergi í yfirgefnu húsi, gluggalausu,
— aðeins madressa á gólfinu. A nóttunni þorðum við varla að
slökkva Ijósið vegna skriðkvikindanna, sem allt var fullt af. Samt
vorum við hamingjusöm... .
Við giftumst 1953, þegar ógnarstjórnin þá var mest. Hve margir
félagar okkar fóru þá ekki að heiman og komu aldrei aftur. Dýfliss-
urnar gleyptu þá eins og gröfin.
Eftir að Kassem tók upp harðstjórastefnu í innanlandsmálum og
hóf ofsóknir gegn byltingarmönnum, beið ég livern dag kvíðafull
iieimkomu Salaams. Þegar sá tími nálgaðist, að hann ætti að koma,
íannst rriér ég oft heyra skot. Kverkarnar urðu þurrar, hjartað
barðist, kvíðinn gagntók mig. Og svo kom hann, hló að ótta mín-
um og ég hjúfraði mig upp að lronum til að fela sársaukann. Aldrei
reyndi ég að telja honum hughvarf, fá hann til að hverfa aí braul
sinni. Þvert á móti. Eg lærði að hata heimsveldisstefnuna og harð-
stjórnina af öllu hjarta ....
Hár mitl varð grátt, sorgin heltók hjarta mitt að eilífu, er mér
barst fregnin um pyntingar og dauða mannsins, sem ég elskaði,
— mannsins, sem ég var fús til að deyja fyrir.
Á þessum skelfilegu augnablikum var ég gripin sterkri, nýrri
kennd. Samhliða sorginni fann ég til stolts. Já, Salaam hafði fórn-
að lífi sínu, hamingju minni, hamingju barna minna, fyrir fólkið.
En hann hafði varðveitl heiður okkar, flokksins og þjóðarinnar.
Hann var áfram með okkur, hann hafði haldið orð sitt, fórnað lífi
sínu fyrir frelsi og hamingju lands síns.
Ég hef misst lífsförunaut minn, sársauki þess missis varir æfi-
langt. En hjarla mitt gleðst yfir því, að maðurinn, sem ég ann, var
sannur maður. Aldrei hilaði trú hans á málstaðnum. Og hver nýr
sigur, sem kommúnisminn vinnur, er mér sárabót.
Dýrð sé þeim mönnum og konum, sem láta lífið fyrir hinn góða
málstað, — sem með hugrekki sínu sanna stórfengleik hugsjóna
sinna, — sem ineð baráttu sinni og fórn afhjúpa ófreskju imperial-
ismans og ryðja brautina til sigursællar framtíðar!