Réttur - 01.01.1965, Qupperneq 60
60
H E T T U K
Lanilslúg og seyðabræv,
Ilandil, sigling og verklig menning.
Þessi bók er okkur Islendingum
þörf áminning um, hve miklu betur
við verðunt að rækja menningarsam-
bandið við okkar færeysku bræðra-
þjóð en gert hefur verið hingað til.
Það að einn fremsti stjórmnálamaður
Færeyinga skuli í öllum önnum
stjórnarstarfs ltafa fundið tíma til að
vinna þetta verk, er til íyrirmyndar
og sýnir oss um leið hverja rækt
fremstu menn Færeyinga leggja við
sögu sína. E. O.
*
World Marxist Keview. —
11. og 12. hefti 1964. - Prag.
í 11. og 12. hefti tímaritsins eru
þessar greinar:
Luigo Longo, ltinn nýi leiðtogi ít-
alska Kommúnistaflokksins ritar
greinina: „ítalski Kommúnistaflokk-
urinn og vandantál alþjóðahreyfing-
ar kommúnista."
Tim Buck, hinn aldraði leiðtogi
Konunúnistaflokks Kanada, ritar um
„eininguna og þörí á ráðstefnu
kommúnistaflokkanna."
Santiugo Carillo, aðalritari spánska
Kommúnistaflokksins, skrifar grcin
um mátt hins skapandi marxisma.
Friedl Fiirnberg, ritari Kommún-
istaflokks Austurríkis, ritar um
„margflokka-kerfið í auðvaldsskipu-
lagi og í þjóðfélagi sósíalismans."
Jacijues IJuclos, liinn nafntogaði
forustumaður franska Kommúnista-
flokksins, ritar um haráttuna fyrir
raunverulegu lýðræði.
Gangaharan D. Adhikari, einn af
leiðtogum Kommúnistaflokks Ind-
lands, ritar grein, er nefnist: „Vanda-
mál Indlands í samhandi við þróunar-
leið án auðvaldsskipulags og ríkis-
vald þjóðlegs lýðræðis."
Zizis Zograjos, meðlimur fram-
kvæmdanefndar gríska Kommúnista-
flokksins, ritar sögulega grein um
ýmra lærdóma, er draga megi af
borgarastyrjöldinni í Crikklandi.
Þá er sagt ýtarlega frá ráðstefnu
þeirri, er ritstjórn tímaritsins gekkst
fyrir í Berlín á 100 ára afmæli fyrsta
Alþjóðasambandsins.
Pieter Keuneman, aðalritari Komm-
únistaflokksins á Ceylon, ritar um
nýja þætti í þjóðfrelsishreyfingunni.
Vladimir Koucky, ritari miðstjórn-
ar tékkneska Kommúnistaflokksins,
ritar um „ýms vandamál í haráttunni
milli hugmyndakerfanna."
Vladimir Boncw, einn uf foruslu-
mönnum Kommúnistaflokks Búlgaríu,
ritar um „föðurlandsfylkinguna, er
sameini þjóðina."
Ibrahim Zakharia, ritari Alþjóða-
sambands verkamanna, og Cuthbert
Magigwana, afríkanskur hlaðamaður,
rita grcin um „verkalýðsfélögin og
stjórnmálin í Afríku."
Joost Morricn, hollenskur hlaða-
maður, ritar um „nýjar leiðir til ein-
ingar, lýðræðis og framfara.11
Daniél Rubin, einn af leiðtogum
æskulýðshreyfingar Konnnúnista í
Bandaríkjunum, ritar grcinina: „Æsk-
an í Bandaríkjunum: ástand hennar
og framtíðarhorfur — þjóðfélags- og
stjórnmálahlið atvinnulífsins."
Mounir Alimid, meðlimur í fram-
kvæmdanefnd Kommúnistaflokksins i
Irak, ritar um: „ástandið í Irak og
stefnu Kommúnistaflokksins.“