Réttur - 01.04.1970, Síða 16
FRA MAMMONSRIKI
John D. Rockefeller
hinn fyrsti af oliukóngaætt Standard Oil,
táknmynd ameríska auðhringavaldsins.
Matthíasi Jocht/mssyni, þjóðskáldinu okk-
ar, gaf sýn, er hann sótti Bandaríkin heim
1893■ Hann sá eigi aðeins hvað þar hafði
gerzt: að ótti Abrahams Lincolns um örlög
lands síns* hafði reynst á rökum reistur, auð-
vald hafði gleypt frelsið marglofaða og eitrað
allt þjóðlíf peningamati sínu. Og Matthías
brennimerkti Bandaríkin „Mammonsríki
Ameríku".
En Matthias sá lengra fram. Hann sá að
við þetta vald yrði að heyja baráttu og eggjar
landana lögeggjan:
„Hvað er FRELSIP — Hjóm og þvaður,
hjörinn ÞINN nema sigurinn vinni!
Þrcelajörð þór veröldin verður,
verk. þín sjálfs nema geri þið frjálsan".
* Abraham Lincoln sagði 1865 skömmu fyrir dauða sinn:
,,Ég sé í framtíðinni kreppu nálgast, sem ég óttast og
gerir mig órólegan um öryggi lands míns. Voldug auð-
félög hafa risið upp í kjölfar styrjaldarinnar; tímabil
spillingar á œðstu stöðum landsins mun af því leiða
og peningavaldið í landinu mun reyna að lengja herra-
vald sitt með því að auka sér í vil hleypidóma fólksins,
þangað til allur auður hefur safnazt á fáar hendur og
lýðveldið er eyðilagt. Mig uggir nú meir um öryggi
lands míns en nokkru sinni fyrr, jafnvel meir en þegar
styrjöldin var verst“.