Réttur


Réttur - 01.04.1970, Page 17

Réttur - 01.04.1970, Page 17
TIL MORÐRlKIS En spámaðurinn meðal islenzkra skálda eygði fleira: „Sjá, ég eygi alla vegu ógnar-land, fce glóð í anda! Vei þér fjöldi villtrar aldar: veldis-orð hér liggur í storðu! Sœk þú hart, en varkár vertu: voðafull eru' lönd úr gulli!" Á þessum árum var heimsvaldasteína Bandaríkjanna rétt að byrja. 1893 höfðu bandarískir auðmenn látið gera innrás á Hawai og Bandaríkjastjórn samstundis viður- kennt leppstjórn þeirra og innlimáð landið í Bandaríkin endanlega 1898. 1903 var upp- reisn Bandaríkjaleppa skipulögð í Kolumbíu, ril þess að kljúfa þann landsskika, er nú nefn- ist Panama, frá ríkinu, því þar vildi banda- rískt auðvald gera skurð. Og þannig var hald- ið áfram með að ná tökum leynt og ljóst í hverju smáríkinu eftir annað: Mexico, San Domingo, Haiti, Nicaragua, Kúba. Og með gleypigangnum margfaldaðist matarlystin. Tvær heimsstyrjaldir færðu Bandaríkja- auðvaldinu ægilegan gróða, sem krafðist nýrra hráefnalinda, nýrra markaða. Suður- Ameríka, Asíulönd, Afríka: löndin, sem hin fornu hrynjandi nýlenduveldi Evrópu höfðu áður undirokað, urðu nú eftirsóttar arðráns- lindir amerískra auðhringa. Hin forna nýlenduundirokun hafði ham- skipti: „Nýlendurnar" fornu hlutu pólitískt sjálfstæði, en auðhringavaldið ameríska sat um að smeigja á þær „gullnum" fjötrum okurlána og sérleyfa, til stórvirkjana og stór- iðju. „Fyrir afsal fríðindanna falt er þar gullok stórvirkjanna". (Stephan G.: Drottins orðið). Nixon forseti framkvæmdastjóri hernaðar- og auðvalds- samsteypunnar, sem nú ræður Bandaríkjunum. 57

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.