Réttur - 01.04.1970, Page 19
baki þessari afskræmingu þjóðlífsins, sem
gerir „frelsisins fimbulstorð'' að ógnþrungn-
asta blóðveldi heims?
Hervald og auðvald er sameinað í eitt
drottnunarvald, sem rœður öllum gerðum
Bandaríkjastjórnar — og líklega ætti hver
Bandaríkjaforseti, sem breytir á móti vilja
þessa valds á hætm að vera steypt með her-
valdi — eða myrtur, eins og Kennedy. Her-
foringjarnir í Pentagon láta bándarísku auð-
hringana sitja að framleiðslu hergagnanna,
en sú framleiðsla er sem kunnugt er í auð-
valdsskipulagi mesta gróðalindin. Og auð-
hringarnir láta svo herforingjana sitja f há-
launuðum stjórnarsætum fyrirtækjanna er
þeir hætta í hernum! Samtvinnun þessa her-
valds og auðvalds er alger og gagnsýrir þjóð-
lífið. Pentagon — hermálaráðuneytið — er
sjálft voldugasti atvinnurekandi landsins,
skrifstofubákn þess fimmfalt á við aðsetur
ríkisstjórnarinnar, eignir þess meiri en nokk-
urrar annarrar stofnunar, landeignir þess 2
miljónir ekra, samsvarandi mörgum ríkjum
í Bandaríkjunum. Utgjöldin til hermála
munu nú gleypa meira en helming fjárlaga-
upphæðarinnar og hætta er á að brátt muni
helmingur alls atvinnulífs Bandaríkjanna
eiga allt sitt undir fjárveitingum til hernaðar.
Þá væru Bandaríkin orðin bákn, sem fram-
ar öllu væru ætluð til eins: víga, sem í æ
ríkara mæli verða morð á saklausu fólki.
Hvað um þá, sem þessi valdaklíka óttast
að yrði henni Þrándur í Götu þessarar þró-
unar?
Morðin á John Kennedy, Martin Lutlier
King, Robert Kennedy og fleiri tala sínu
máli. Harkan við stúdentana, sem mótmæla
morðpólitík valdaklíkunnar, og morð á fjór-
um þeirra sýna hvert stefnir. Það sem CIA
er erlendis, er FBI — leynilögreglan — inn-
anlands.
Það er slíkur voði á ferðum að jafnvel
herforingi og forseti eins og Eisenhower gat
ekki orða bundizt að vara við hvert stefndi,
er hann skildi við. I skilnaðarræðu sinni 17.
janúar 1961 sagði hann meðal annars um
„hernaðar- og iðnaðarsamsteypuna" („the
military-industrial complex"):
59