Réttur - 01.04.1970, Síða 27
UPPREISNIN í VARSJÁ 1944
Saga pólsku þjóðarinnar er rík af hetjudáðum og
sorgleikjum, ekki sízt af uppreisnum, sem enga
áttu von um sigur. Stundum voru þessar uppreisnir
gerðar til þess að deyja heldur sem hetjur með
vopn í hönd, en biða gasofnanna. Þannig var upp-
reisnin i Gyðingahverfinu (Getto) í Varsjá 1943. —
En stundum bjó að baki uppreisnar refskák aftur-
halds, en fórnfýsi og hetjuskapur alþýðu léði henni
dýrðarljóma sinn. Þannig var uppreisnin i Varsjá
1944. Nýlega er komin út bók eftir einn aðalleið-
toga Pólska Verkamannaflokksins (PPR) Zenon
Kliszko, sem sjálfur stjórnaði deild ur alþýðuhern-
um (AL) og barðist i þessari uppreisn i þeim borg-
arhluta Varsjá, sem Zoliborz heitir.*
★ Bók þessi heitir á þýzku ,,Der Warschauer Aufstand,
ErinnerunBen und Betrachtuneen" og kom út hjá Dietz
VcrlaB í Berlín 1969, þýdd úr pólsku.
Zenon Kliszko er fæddur 1908 í Lodz, einni
helztu iðnaðarborg Póllands. Hann kynntist strax
sem barn arðráninu og kúguninni, sem verkalýður-
inn var beittur og varð snemma sósialisti, varð
meðlimur i hinum leynilega starfandi pólska Komm-
únistaflokk og varð einn af beztu starfsmönnum
hans. Fékk hann snemma að kenna á dýflissum
afturhaldsins pólska, lenti fyrst i fangelsi aðeins
25 ára að aldri. Árið 1938 var Kommúnistaflokkur
Póllands leystur upp undir áhrifum þeirrar ofstæk-
isöldu, er þá gekk yfir og nokkrir foringja hans, er
dvöldu landflótta i Moskvu, urðu ofsóknaræðinu
að bráð. Var það mikill sorgleikur fyrir kommún-
istahreyfingu Póllands. En i janúar 1942 var Pólski
Verkamannaflokkurinn (PPR) stofnaður og tók strax
til óspiltra málanna að skipuleggja baráttu pólsku
alþýðunnar gegn þýzku fasistunum, m.a. með skipu-
lagningu alþýðuhers (AL). En sá alþýðuher og flokk-
urinn varð einnig að vera á verði gagnvart pólska
67