Réttur


Réttur - 01.04.1970, Qupperneq 29

Réttur - 01.04.1970, Qupperneq 29
Gyðingar reknir upp úr neðanjarðarbyrgjunum eftir Getto-uppreisnina 1943. Var þetta fólk ýmist drepið strax eða fíutt í eyðingarfangabúðir. ísk stórjarðeigenda og auðmannastétt sú, er hún var fulltrúi fyrir, gæti aftur læst Pólland í helgreip- um sínum. i júlí 1944 myndaði svo pólska þjóðarráðið í Lublin fyrstu verkamanna- og bændastjórn Pól- lands: Pólska þjóðfrelsisráðið. Þá ákvað pólska útlagastjórnin i London og herstjórn hers hennar i Póllandi að láta gera upp- reisn í Varsjá 1. ágúst. Tilgangurinn var að ná fót- festu fyrir þessa aðila á pólskri grund og geta tal- að sem fulltrúi Póllands. Allur undirþúningur var slæmur af hendi þessarar forystu. Þegar útlaga- stjórnin talaði við brezku stjórnina um þetta, fékk hún þau ráð að hafa fyrst og fremst samráð við stjórn sovézka hersins, sem var ekki langt frá hinu- megin Vislu-ár eftir að hafa sótt fram með gifur- legum fórnum um langan veg. En afturhaldsforkólf- arnir höfðu hvorki samráð við sovézka herinn rié alþýðuherinn pólska (AL). Uppreisnin átti að vera pólitiskt bragð á móti þessum aðilum. Hinsvegar logaði auðvitað hatrið gegn nazistun- um í hjörtum Pólverja og vitað var að hver hvatning til uppreisnar myndi finna bergmál i brjóstum pólskrar alþýðu, sem auðvitað treysti þá á að slikt væri af fyrirhyggju og heilindum gert. Kliszko segir í bók sinni: „Sannleikurinn um uppreisnina í Varsjá hefur tvær hliðar. 69

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.