Réttur


Réttur - 01.04.1970, Side 37

Réttur - 01.04.1970, Side 37
fram að til þessa og allt til 19. júní var svo til ekkert rætt við fulltrúa iðnaðarmannafé- laganna sem þó höfðu fyrir löngu sent inn kröfur sínar og sum — málmiðnaðarfélögin -— hafið verkfall. Nú stóðu mál þannig að atvinnurekendur höfðu boðið 10%, en verka- lýðsfélögin höfðu lækkað kröfu sína niður í 22—23%. Rétt er að geta þess, að 1. júní tók gildi ný kaupgreiðsluvísitala, sem þýddi 35,32% verðlagsbætur á 10.000 í grunn í stað 30,84 fyrir mánaðamótin. 5. júní birti Þjóðviljinn yfirlit yfir verk- fallsfélögin, sem voru þá 42 talsins með um 14 þúsund félagsmenn. Þessi félög voru nú í verkfalli auk þeirra sem áður voru nefnd vegna vinnustöðvunar frá 27. maí: Trésmiðafélag Reykjavíkur Félag járniðnaðarmanna Sveinafélag húsgagnasmiða Múrarafélag Reykjavíkur Sveinafélag skipasmiða Félag bifvélavirkja Félag blikksmiða Félag bifreiðasmiða Mjólkurfræðingafélag Islands Sveinafél. járniðnaðarmanna, Akureyri Félag byggingariðnaðarmanna, Hafn. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflav. Iðnsveinafélag Suðurnesja, málmiðn- aðar- og byggingamannadeild Verkakvennafélag Keflávíkur og Njarðvíkur Verkalýðsfélag Akraness Sveinafélag skipasmiða, Akranesi Sveinafélag málmiðnaðarmanna, Akranesi Sveinafélag járniðnaðarmanna, Vestmannaeyjum Verkamannafélagið Fram, Sauðárkróki Sveinafélag málmiðnaðarmanna, Húsav. og S.-Þing. Verkamannafélagið Báran, Eyrarbakka Verkalýðs- og sjómannafélagið Bjarmi, Stokkseyri Verkalýðsfélagið Þór, Selfossi Verkalýðsfélag Hveragerðis Járniðnaðarmannafélag Arnessýslu Bílstjórafélagið Okujpór, Selfossi Verkalýðsfélag Hafnarhrepps Verkalýðsfél. Vatnsleysustrandarhrepps Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahr. Verkalýðs- og sjómannafél. Miðneshr. Verkalýðsfélag Stykkishólms Verkalýðsfélagið Afturelding, Hellis- sandi Verkalýðsfélagið Stjarnan, Grundar- firði Verkalýðsfélag Húsavíkur Auk þeirra félaga, sem hér hafa verið nefnd var samúðarverkfall á vegum Lands- sambands vörubifreiðastjóra hjá Vegagerð ríkisins. 6. júní hófst verkfall Félags ísl. raf- virkja, 10. júní hjá Verkakvennafélaginu Öldunni Sauðárkróki, 12. júní hjá Félagi framreiðslumanna og Félagi matreiðslu- manna og sama dag, 12. júní, boðaði Vöru- bílstjórafélagið Þróttur í Reykjavík verkfall. Vert er að geta þess að verkfall Mjólkurfræð- ingafélags Islands var takmarkað verkfall all- an tímann, en ekki verður rakið hér hvernig þeim takmörkunum var háttað. Nauðsynlegt er að geta þess að ríkisstjórn- in greip enn inn í samningana um þetta leyti á ný — í fyrra skiptið vegna gengishækkun- ar. Nú var aldeilis ekki gengishækkun á döf- inni — nú var dæminu snúið við og sagt að útflutningsatvinnuvegirnir væru nánast á von- arvöl. Til þess að undirstrika þetta sendu forsvarsmenn frystiiðnaðar á vegum SIS frá sér greinargerð þar sem sagt var að frystiiðn- aðurinn þyldi hreint ekki neitt! Þannig tafði ríkisstjórnin og atvinnurekendur vinnudeil- una eins og þeir framast gátu og nutu til þess aðstoðar hjálparkokkanna í SIS. 77

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.