Réttur


Réttur - 01.04.1970, Side 41

Réttur - 01.04.1970, Side 41
ERLEND VÍÐSJÁ BRASILlA í heiminum nú á dögum gemr riki aðeins talizt voldugt, ef það hefur yfir að ráða auð- lindum, sem fullnægja þörfum íbúanna, því að í framtíðinni eygjum við ískyggilegan skort á náttúruauðæfum, matvælum og ýms- um brýnum lífsnauðsynjum vegna vaxandi fólksfjölgunar. Þá koma aðeins fjögur ríki til greina sem stórveldi, þ.e. Kanada, Sovct- ríkin, Kongó og Brazilía. I rauninni er Brazilía voldugt ríki. Rækt- anleg landsvæði eru víðáttumeiri en öll Ev- rópa, þar eru 15% af skógum heimsins, 35% af járngrýti, auk þess sem Brazilía er mesti kaffiútflytjandi heims. Landið er um 8 miljón og 5 hundruð þúsund ferkílómetrar og íbú- arnir um 90 miljónir en helmingur þeirra er vannærður, illa klæddur og sjúkdómar herja á. I sex af fylkjum Brázilíu deyr sjötta hvert barn, áður en það nær eins árs aldri, og sjötta hvert barn þjáist af skjaldkirtilbólgu. Tækni- lega er landið mjög vanþróað. Einn hektari lands í Brazilíu gefur af sér 100 kíló af korni og 1500 kíló af hrísgrjónum, en tilsvarandi hektari á Italíu gefur af sér 1600 kíló af korni og 4600 kíló af hrísgrjónum. Brazilía gæti framleitt 80 miljón kílóvött af raforku en nýtir aðeins 5 miljónir, eða ámóta og stórborgin New York. Brazilía er land andstæðnanna. Oft er sagt, að tvö fylki ráði öllu í landinu, þ. e. iðnað- arfylkin umhverfis Sao Paulo og Rio de Jan- eiro. I æpandi andstöðu eru héruðin í norð- urhluta landsins. Þar búa um 25 miljónir bænda við lénsskipulag stórjarðeigenda, sem ráða algerlega yfir leiguliðunum. Nær 50% allra barna deyja áður en þau ná eins árs aldri og hunguróeirðir brjótást út, einkum á þurrktímanum sem stendur í 10 mánuði ár hvert. Þarna verða jafnvel katólskir prestar byltingasinnaðir. Faðir Emerson Negreiros sagði við sóknarbörn sín í Santa Cruz: „Þið verðið að eiga geit til að hafa mjólk handa börnum ykkar. Ef landeigandinn kemur og bannar ykkur það og ætlar að drepa geitina, þá er hann að ógna lífi barna ykkár. Látið hann ekki drepa geitina. — Drepið hann fyrst". Ekki gat klerkurinn þó sagt sóknarbörnum sínum, hvernig þau ættu að eignast geit. I þessum norðausmr héruðum fá um 2 miljónir íbúanna innan við 100 hitaeiningar í fæð- unni og sveltá heilu hungri. Margir selja sig eða einhvern fjölskyldumeðlim í þrældóm á kaffiekrurnar til að fleyta sér áfram. En það er ekki eingöngu í norðausturhér- uðunum sem brazilíubúar deyja úr hungri og sjúkdómum. I fátækrahverfum í fjalls- hlíðunum umhverfis Rio de Janeiro býr ein af þrem miljónum íbúa höfuðborgarinnar í trékassahreysum, sem hrynja saman í stór- rigningum. Þar er ekkert rennandi vatn til drykkjar utan regnvatn. 81

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.