Réttur


Réttur - 01.04.1970, Page 45

Réttur - 01.04.1970, Page 45
NEISTAR „Mammonsríki Ameríku" Það fljóta lík niður Mekong- fljótið, — vinir Bandarikjanna fengu fyrirskipun um að tryggja sér völdin. Það er komið upp fangabúðum í Kambodiu, — Bandaríkin höfðu sent sína ClA- menn þangað .... Bandarikín vilja helst heyja strið án stríðsýfirlýsingár. Stjórnendur Bandaríkjanná'hafa þar sama hátt á og Japan, Mussolini og Hitler. Eða skyldi munurinn vera sá að Bandarikin herja nú á Asiumenn? Skyldi forseti Bandaríkjana þá fyrst verða lýstur stríðsglæpamað- ur, ef lík flytu niður Signu, ef Svi- ar yrðu fyrir eiturgasi, ef Danmörk yrði vettvangur kemisks striðs? Stjórn Bandarikjanna er glæp- samleg stjórn. Heimsvaldastefna Bandaríkjanna er sameiginlegur óvinur allra þjóða. En ekki allra ríkisstjórna. Jan Myrdal i „Orientering". Möguleikinn er til Möguleikinn til þess — með félagslegri framleiðslu, — að tryggja öllum meðlimum þjóðfé- lagsins afkomu, sem er ekki að- eins fullkomlega viðunandi i efna- legu tilliti og verður með degi hverjum ríkulegri, heldur tryggir þeim líka fullkomlega frjálsa þroskun og þjálfun líkamlegra og andlegra hæfileika þeirra, — þessi möguleiki eru nú í fyrsta skipti tll, en hann er til. Friedrich Engels: Anti-Duh- ring, 1878. Lokasigurinn tryggður Þegar öllu er á botninn hvolft, mun það ráða úrslitum i barátt- unni að íbúar Rússlands, Indlands, Kína o. fl. ríkja eru yfirgnæfandi meirihluti jarðarbúa. En einmitt þessi meirihluti hefur á síðustu árum dregist með óvenjulegum hraða inn í baráttuna fyrir frelsi sinu, svo að í því tilliti getur ekki leikið mirinsti vafi á, hvei;-nig loka- úrslit baráttunnar verða á heims- mælikvarða. i þessu tilliti er loka- sigur sósialismans fullkomlega og skilyrðislaust tryggður. Lenín: „Frekar minna en betra". 2. marz 1923. Baráttan og hugsjónirnar Menn berjast og biða ósigur í bardaganum, og það, sem þeir börðust fyrir, kemst samt á, þrátt fyrir ósigur þeirra, og þegar það kemst á, þá sýnir það sig að það er ekki það, sem þeir vildu, og aðrir menn verða að berjast fyrir þvi, sem þeir vildu, undir öðru nafni. William Morris, i „Dream of John Ball". Svo vonirnar rætist ... Þjóðnýting framleiðslutækjanna skapar forsendurnar, sem gera oss kleift að nálgast það ástand, sem við í rauninni hugsum um þegar við tölum um sósíalisma, — sem sé það ástand þegar persónu- leiki mannsins nær að njóta sin fylst og frjálsast gagnvart öllu valdi stjórnunar og tækni, og mesta hugsanlega þátttaka í stjórnmálum og efnahagsmálum, allt frá veigamestu málum til smá- atriða. Maðurinn verður að forða sér frá þeirri hættu að verða aðeins tannhjól í vélinni. Þessar vonir um sósialisma rætast ekkj sjálfkrafa þegar framleiðslutækin eru þjóðnýtt. Þær rætast ekki nema á þessum grundvelli, en það verður að berjast fyrir þeim. Og sannfæringin um að þjóðnýting framleiðslutækjanna sé þýðingar- mesta undirbúningsskrefið i bar- áttunni fyrir því að þessar vonir rætist, verður að verða sannfær- ing sem allramests fjölda fólks, til þess að mennirnir geri þróunar- lögmálið að veruleika og sósíal- isminn verði að reynd sem æðsta form mannúðarstefnu. Franz Marek: Heimspeki heimsþyltingarinnar. Lokaorð. Þú! Hlutirnir geta ekki haldist eins og þeir eru. Þú verður að breyta þeim. Bertolt Brecht. 85

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.