Réttur


Réttur - 01.04.1970, Síða 48

Réttur - 01.04.1970, Síða 48
Liselotte Herrmann ur mánaðarlega. Heitir það „Wie- ner Tagebuch" og ræðir mjög frjálslega og gagnrýnið öll helztu áhuga- og ágreinings-mál róttækra sósialista. öllum þeim íslenzkum sósíalistum, sem geta notfært sér þýzku, og áhuga hafa á að fylgj- ast með á alþjóðavettvangi, er ráðlagt að lesa þetta tímarit. Það segir einnig vel frá ýmsum nýjum bókum um þessi mál. Meðal ann- arra, sem í það rita er Ernst Fis- cher. — Utanáskrift þess er: 1090 Wien, Lustkandlgasse 4—6, en einnig er hægt að panta það gegn- um Bókabúð Máls og menningar. (Verðið er 10 shillingar (austur- rískir) eða ca. 40 krónur, árgang- urinn 5 dollarar). Babette Gross: Willi Múnzenberg. Eine politische Biographie. Deut- che Verlags-Anstalt. Stuttgart 1967. Willi Munzenberg (1889—1940) var einn af fremstu mönnum Kommúnistaflokks Þýzkalands 1919—38, skipuleggjari mikilla al- þjóðasamtaka, svo sem A.S.V. 88 Willi Munzenberg (Alþjóðasamhjálp verkalýðsins), Rauðu hjálparinnar (fangahjálpar), Bandalagsins gegn heimsvalda- stefnunni o. fl. og jafnframt stór- útgefandi bóka og blaða I Berlín, en þar áður var hann leiðtogi ungra kommúnista og ritari Al- þjóðasamsambands þeirra. Fjalla endurminningár þær, er hann gaf út 1930: ,,Die dritte Front" (Þriðju vígstöðvarnar) um þá baráttu hans. Munzenberg vakti aðdáun flestra, er honum kyrintust þ. á. m. ým- issra Islendinga. Þannig lýsir Hall- dór Kiljan Laxness honum, er hann var á hátindi baráttu sinnar, á heimsþingi gegn stríði , I Amster- dam 1932: „Hápunktur þingsins, ekki að- eins hvað mælskulist snertir, held- ur einnig glöggskyggni á hið hag- nýta, var ræða Willy Múnzen- bergs, seinni part annars dagsins. Eftir að einir tuttugu ræðumenn höfðu verið á pallinum og þreytu tekið að verða vart meðal þús- undanna i salnum, en hitinn I kringum þrjátiu stig, þá tókst þessum snilldarlega oddamanni hinna alþjóðlegu samtaka, sam- starfsmanni Leníns og stofnanda A.S.V. að lægja óróaöldu í saln- um, og tala svo til hjarta fjöldans, að milfi ástríðuþrunginna heilla- ópanna, sem fjöldlnn laust upp ósjálfrátt við áherzluatriðin i ræðu hans, þá mátti heyra flugu anda. Því miður er hér ekki rúm til að rekja til hlítar hina glæsilegu ræðu fél. Múnzenbergs, en hún var ekki aðeins listaverk í málsnilld, heldur einnig fagurt vitni um samþjapp- aðan persónuleik og hetjuanda I baráttunni fyrir málstað hinna und- irokuðu; það er sjaldgæft að heyra rödd hinna undirokuðu hefja sig með svo glæsilegum arnsúg. I máli hans lifði sá upprunaleiki, sem þekkir engan brest, þessi óbrot- legu meginrök, sem maður gerir sér I hugarlund, eftir lýsingum að hafi einkennt framkomu Lenlns, þegar hann talaði fyrir fjöldanum, á andlitl Múnzenbergs skein hið sérkennilega, sigurvissa bros og í reisn hans þessi ögrandi hótun gegn hinum kapítalistisku böðlum, sem maður er annars vanur að kenna við Lenín." (Verkalýðs- blaðið, 13. sept. 1932). Ofannefnd ævisaga, rituð af konu hans og einkaritara, Babette Gross, er mikil bók og ýtarleg og eina ævisaga hans, sem oss er kunnugt um. Er þar að finna mik- inn fróðleik um lif hans og starf og greinilegt er að lifsförunautur hans reynir eftir mætti að forðast að láta þá beiskju, er sorgleg ör- lög hans valda hjá henni, lita frá- sögnina of mikið, þótt hennar gæti vissulega stundum sem mannlegt er. Saga Willi Munzenbergs er ein af hetjusögnum og harmleikjum heimshreyfingar sósíalismans. E. O.

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.