Réttur - 01.10.1983, Blaðsíða 1
léttur
66. árgangur
1983 — 4. hefti
Árið 1983 er á enda og árið 1984 verður byrjað, er þetta síðbúna hefti kem-
ur út — 1984 ár Orwells. Og sá „stóri bróðir“, er hann spáði um, — „hernað-
ar- og stóriðju-klíka“ Bandaríkjanna, svo notuð séu orð Eisenhowers, — vakir
yfir hverju skrefi okkar Islendinga og ætlar sér á þessu ári að stjórna landinu
algerlega gegnum leppa sína. Allt land vort hefur herstjórn „stóra bróður"
Ijósmyndað og kortlagt á 40 ára dvöl — og fullkomin persónuskrá yfir alla full-
orðna Islendinga og skoðanir þeirra er hjá bandaríska sendiráðinu á Lauf-
ásvegi, sumpart máske byggð á merktum kjörskrám vissra hernámsflokka.
Og sagan sýnir hve strangt eftirliti „stóra bróður" hefur verið framfylgt, er jafn-
vel íslensk kona af vestur-íslensku bergi brotin, en gift kunnum sósíalista
fékk ekki „visum“ þ.e. leyfi til að fara með flugvél til New York og taka á Kenn-
edyflugvelli flugvél til Winnipeg innan tveggja tíma! En nóg um hinar full-
komnu njósnir Kanans á (slandi. En verra er það, sem nú er að gerast.
Á Islandi situr nú að völdum ríkasta og að sumu leyti skammsýnasta yfir-
stéttarklíka, sem nokkru sinni hefur ráðið þessu landi.
Þessi forríka valdastétt hefur nú ráðist af meiri fruntaskap og ósvífni á lífs-
kjör íslenskrar alþýðu, en gert hefur verið nokkru sinni fyrr á þesari öld — og
hyggst þar með stórauka illa fenginn auð sinn, sem hún hefur safnað á
undanförnum 30 árum, m.a. með því að hundraðfalda gildi dollarsins en setja
nú laun verkalýðs og starfsfólks niður í það, sem var fyrir 30 árum, innleitt fá-
tæktina á fjölda heimila verkafólks, eftir að það böl var þaðan útlægt gert með
sigri verkalýðs í skæruhernaðinum 1942, þegar svipuð ólög og kauprán var
brotið á bak aftur af samtaka vígreifum verkalýð.
193