Réttur - 01.10.1983, Qupperneq 4
Er „Watergate-byggingin“ að verða tákn fyrir ægi-
vald forríkrar auðmannaklíku, er þjónar erlendu
auðvaldi og þiggur offjár fyrir, svo hún veit vart
hvað við peningana skuli gera?
En af því alþýða manna hefur þó reynt
að halda í horfinu um kaupgetuna og
öðru hvoru kosið ríkisstjórnir, sem af-
stýrðu því atvinnuleysi, sem valdaklíka
yfirstéttarinnar ætlaði að koma á, þá skal
nú, er svörtustu afturhaldsöflin í Fram-
sókn og íhaldi, ráða ríkisstjórn, beitt slík-
um böðulsaðferðum við íslenska alþýðu
að hún nái sér ekki eftir þær, heldur verði
hinni nýju fátækt að bráð, — einmitt 40
árum eftir að samskonar stjórnarsam-
steypu „þjóðstjórninni“ mistókst að við-
halda örbirgð á íslandi og varð að víkja
og gefast upp við gerðardómslögin, er al-
þýða manna sýndi henni vald sitt með
skæruhernaðinum.
Það er eðlilegt að alþýðu manna of-
bjóði níðingsverk íslensku miljónamær-
inganna.
Dollaraskráningin 1950 og síðan hefur
fyrst og fremst verið klækjabragð til að
lækka kaupgjald verkalýös, hækka verð-
gildi dollara, sem íslenskir braskarar eiga
erlendis, hlífa illa reknum fyrirtækjum
við gjaldþroti o.s.frv., en ekki nema ör-
sjaldan þjóðhagsleg nauðsyn. En afleiðing-
in hefur verið þjóðhættuleg: gert Island
að einu skuldugasta landi heims, af því
flest lán erlendis eru tekin í dollurum.
Það er þjóðarnauðsyn að allt þetta sé
rannsakað niður í kjölinn og þeir ábyrgu
látnir sæta ábyrgð.
II.
Konur hvetja til dáða
Svo hart sverfur nú að almenningi, að
það gerist sem sjaldgæft er í baráttu stétt-
anna, en ber þó einmitt við þá yfirstéttin
beitir mestu harðræði, er bitnar fyrst og
fremst á konum og börnum.
Konur eru óvanar því að bera á borð
fyrir almenning fátækt sína og áþján,
heldur hafa alltof oft borið harm sinn í
hljóði. En nú gerist það, eins og eitt sinn
áður á þessari öld að konur kveða upp úr
með að berjast skuli þegar aðfarir aftur-
haldsins keyra úr hófi fram, svo þær fá ei
lengur orða bundist.
1932
Svo var það í nóvember 1932, er mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað að nú
skyldi nota neyð almennings og atvinnu-
leysi til þess að hefja allsherjarkauplækk-
un og byrja með því að lækka kaupið í at-
vinnubótavinnunni, sem atvinnulausir
menn fengu þá margir hverjir eina viku í
mánuði: ráðast á garðinn þar sem hann
196