Réttur - 01.10.1983, Page 43
Dómur William Fulbright um
núverandi Bandaríkjastjórn.
W. Fulbright, sem var formaður utanríkismálanefndar öldungadeildar Banda-
ríkjaþings 1959-1975 átti viðtal við „Weltwoche“ í Sviss 8. júní sl. og sagði m.a.
eftirfarandi, er blaðið spurði hann um álit hans á yfirstandandi „erfiðleikum í al-
þjóðamálum“ (,,Krise“) í samanburði við Kalda stríðið.
„Það, sem við sjáum nú, álít ég mjög
varasamt, af því það eru óreyndir menn,
sem stjórna Bandaríkjunum. Peir þekkja
ekkert til fortíðarinnar, hvorki grunar þá
né vita hvað áður hefur gerst í sam-
skiptum Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna. Mestu áhrifamennirnir í Hvíta hús-
inu, þeir sem móta utanríkispólítíkina,
eru allt nýir menn (newcomers). Þeir hafa
enga reynslu frá fyrri stjórnartíð og það
gerir málið allt hættulegt. Þeir koma frá
Hollywood og meðhöndla deilumál á
Hollywood-vísu. Mér finnst það mjög
sorglegt að svo stórkostlegt land sem
Bandaríkin hafi svo ófært stjórnmála-
kerfi, að fáráðlingar geti orðið forustu-
menn þjóðar. Ég þekki enga ríkisstjórn
þar sem slíkt ástand ríkir. Petta er annar
forsetinn í viðbót sem hefur ekki snefil af
reynslu í alþjóðasamskiptum. Ég er
hræddur um að við séum á öfugri leið. Ég
trúi á það sem við áður fyrr kölluðum
„detente“ (spennuslökun). Ákveðin
slökunarstefna var framkvæmd 1972,
þegar Nixon forseti hitti herra Breshnew
og þeir náðu samkomulagi á ýmsum
sviðum. Verslunarsamningur var gerður,
Salt I og ýmsir samningar um samstarf í
lyfjafræði, geimkönnun og umhverf-
isvernd og auk þess var tekin ákvörðun
um ýmis sameiginleg rannsóknarefni. Pað
er leiðin til betri samkipta.“
235