Réttur - 01.08.1985, Side 11
VOÐI MANNHEIMS:
Bandaríska
yfirdrottnunarstefnan:
Hungur og hel
hlutskipti milljóna manna
í allsnægtaheimi
Nýjustu hernadarfyrirætlanir þessa
árásarríkis aðeins á íslandi
nema tugum milljarða króna.
Það er voði á ferðinni fyrir mannkyn allt, ef ekki er risið af nægum krafti gegn
hinum ægilegu fyrirætlunum bandaríska auðvaldsins um að drottna yfir öllum
heimi í krafti kjarnorkuógnana sinna. Vígbúnaðarauðvaldið er svo kolbrjálað
vegna gífurlegs gróða síns, að því er trúandi til að beita kjarnorkuvopnum sínum
hvenær sem er, til þess að reyna að gera heimsvaldadraum sinn að veruleika.
Vér íslendingar fáum „smjörþefínn“ af þessum morðfyrirætlunum, þegar birt
er í nýjustu skýrslu „Öryggisnefndar“ að verja eigi í hernaðarframkvæmdir hér
á landi á næstunni 12 milljörðum króna og þá eru allar framkvæmdirnar á Kefla-
víkurflugvelli, ratsjárstöðvarnar og endurnýjunin öll ekki reiknuð með, en slíkt
myndi koma kostnaðinum upp í 40 milljarða króna. Þar í eru vissulega áætlanir
um að vernda ameríska stjórnliðið í góðum „stjórnstöðvum“ — gryfjum, en ís-
lensku þjóðinni á að fórna, — eins og alltaf hefur verið meiningin hjá þessum
landræningjum, sem nú hafa hersetið Iand vort í meir en fjóra áratugi.
Bandarískir stjórnmálamenn, ekki síst
utanríkisráðherrar, eru margstaðnir að
því gagnvart Islendingum að blekkja oss
miskunnarlaust. Mega menn sem best
muna yfirlýsingar Dean Achesons, er var
utanríkisráðherra 1949, þegar Island var
blekkt og svikið inn í Atlantshafsbanda-
lagið, fyrst og fremst á grundvelli þeirrar
bandarísku stjórnaryfirlýsingar „að ekki
kæmi til mála, að erlendur her eða her-
stöðvar yrðu á íslandi á friðartímum“.
Alíka vægðarlaus er blekkingin nú við-
139