Réttur - 01.08.1985, Síða 29
Þróunin varð þó önnur en þessi öfl
höfðu vonast til. í byrjun árs 1980 gengu
sósíaldemókratar úr stjórninni og kristi-
legi demókratinn Napoleon Duarte komst
til valda. Nokkru síðar hrökkluðust svo
herforingjarnir framsæknu úr stjórninni.
Sameining vinstri afla
Kommúnistaflokkurinn endurmat
einnig fyrri afstöðu og sendi frá sér yfir-
lýsingu með sjálfsgagnrýni á fyrri stefnu
flokksins. Á fyrri hluta ársins 1980 sam-
einuðust hin byltingarsinnuðu vinstri öfl.
I apríl það ár stofnuðu stjórnmálaarmar
skæruliðahreyfinganna Lýðræðisfylking-
una, FDR, og í október sama ár runnu
hernaðararmarnir saman í Farabúndó
Klartí þjóðfrelsishreyfinguna, FMLN.
FMLN-FDR varð semsé til úr hernað-
ar' og stjórnmálaörmum eftirfarandi
fimm samtaka: FPL, ERP, RN, PRTC og
kommúnistaflokksins. Fjöldi hagsmuna-
samtaka, verkalýðsfélaga, stúdenta- og
kvennasamtaka, eigenda smáfyrirtækja
o s.frv. hafa gengið í FMLN-FDR, og
það er enginn vafi á því að þessi hreyfing
er málsvari víðfeðmra og fjölmargra hópa
úr neðri lögum og stéttum í E1 Salvador.
Þróun frelsisbaráttunnar á öndverðum
9- áratugnum sýnir ljóslega að FMLN-
FDR nýtur stuðnings mikils meiri hluta
slþýðunnar. Tekist hefur að frelsa
minnsta kosti þriðjung landsins og byggja
bar upp stjórnsýslu, skóla og sjúkrahús
undir alþýðustjórn.
Jafnframt hafa skæruliðasveitirnar sýnt
að þær geta látið eftirminnilega til sín
taka hvar sem er í landinu. Pær hafa unn-
*ð á sitt vald bæi og hernaðarmannvirki,
sprengt brýr og raforkuver. En það sem
ntikilvægast er, skæruliðarnir gefa alþýð-
unni von um betri framtíð.
í forsetatíð Reagans hafa Bandaríkin
aukið gífurlega hernaðaraðstoð sína við
stjórnvöld, og jafnframt haldið því blá-
kalt fram, eins og svo oft áður, að felsis-
baráttan sé „rekin frá Moskvu og Hav-
anna“.
Vegna hins sérstaka uppruna frelsis-
hreyfingarinnar í E1 Salvador hafa sam-
tökin fimm mismikil ítök í hinum ýmsu
landshlutum. Aðgerðirnar gegn stjórn-
völdum hafa þó verið samhæfðari upp á
síðkastið, þó að samstarfið sé ekki alltaf
hnökralaust.
Pólitískur ágreiningur
Byltingarsamtökin FPL — stofnuð af
vinstri öflum úr kommúnistaflokknum —
áttu í erfiðleikum árið 1983 þegar frum-
kvöðull hreyfingarinnar, Carpio, svifti sig
lífi eftir pólitískan ágreining í forustu
samtakanna. FPL, Kommúnistaflokkur-
inn og ERP eru nú stærstu samtökin í
FMLN-FDR.
í ársbyrjun 1984 var efnt til forseta-
kosninga í E1 Salvador og varð Napoleon
Duarte forseti á ný. í kosningunum 1982
hafði FMLN hvatt fólk til að kjósa ekki,
en þessi hvatning var ekki endurtekin þó
að frelsishreyfingin tæki ekki þátt í kosn-
ingunum. Var þetta m.a. vegna þess, að
margir sem ekki kusu í kosningunum
1982, urðu fyrir barðinu á valdhöfum og
afturhaldinu eftir á. Duarte sigraði fram-
bjóðanda Arenaflokksins, sem er flokkur
öfgafyllstu hægrisinna. Pað er reyndar
ljóst að sigur Duarte var Bandaríkjunum
mest að skapi, þar sem mótframbjóðand-
inn var alræmdur, m.a. sem leiðtogi
hinna svokölluðu Dauðasveita.
157