Réttur - 01.08.1985, Page 42
Mngflokkur Alþýöubandalagsins.
vinnutíma, auka sameiginlega þjónustu
og treysta íslenska menningu".
Kveikjan af Kvennastefnunni var auð-
vitað sú vitund flokkskvenna að staða
þeirra og áhrif innan flokksins eru ekki
þau sem þær kysu. Vissulega hefur kon-
um fjölgað til muna síðustu árin í stofn-
unum flokksins. Síðasti flokksráðsfundur
kaus t.d. 36 konur á móti 34 körlum í nú-
verandi miðstjórn. Hlutur kvenna í sam-
bærilegri kosningu árið 1977 var 19%.
Miðstjórnin sem nú situr kaus 5 konur en
4 karla í framkvæmdastjórn flokksins.
Miðstjórnin 1977 kaus 1 konu á móti 5
körlum. Hins vegar er blekking að horf-
ast ekki i augu viö þá staðreynd að þeir
sem fyrst og fremst móta pólitík flokksins
og starfshætti eru atvinnumennirnir í póli-
tík. Ein kona hefur fulla atvinnu af
stjórnmálum á vegum Alþýðubandalags-
ins. Hún situr í þingflokknum við hliö 9
karla. í sveitarstjórnum sitja nú 29 full-
trúar flokksins, þar af eru 8 konur, eða
27.6%. Þetta hlutfall var 23,8% eftir
kosningar 1974. Ef Alþýðubandalaginu
er full alvara meö að konur móti pólitík
flokksins til jafns við karla veröur auövit-
að að gjörbreyía þessum hlutföllum.
Talsmenn flokksins út á viö eru nær ein-
göngu karlar. Sú mynd breytist ekki
nema fleiri konur veröi settar til fullra
verka í stjórnmálabaráttunni.
170