Réttur


Réttur - 01.08.1985, Síða 43

Réttur - 01.08.1985, Síða 43
Atvinnumennska kvenna í pólitík er aðeins einn þátturinn í þeim breytingum sem nauðsynlegar þykja. Kröfurnar um opnari vinnubrögð og aukið lýðræði í flokksstarfi og við stefnumótun eru há- værar meðal kvenna. Áhersla er lögð á aukið fræðslustarf og námskeiðahald, bæði hvað varðar ákveðin málefni sem og þjálfun fyrir fólk að taka þátt í félags- starfi. Fundaform og umfjöllun mála vill oftast verða á forsendum þeirra sem best eru inní málum, þ.e. atvinnumanna. Þetta hafa konur í flokknum lengi gagnrýnt. Væntingum þeirra um að flokksstarf felist í sameiginlegri viðleitni fólks með svipaða lífssýn til að hafa áhrif á umhverfi sitt, hefur illa verið svarað. Hugmyndir þeirra um forgangsröö verk- efna og áherslur í stjórnmálabaráttunni eru oft aðrar en flokksbræðranna. I fáum orðum má segja að niðurstaða umræðna meðal kvenna í Alþýðubanda- laginu undanfarna mánuði sé sú að þær stefna á athafnir á næstunni. Þær líta á það sem hlutverk sitt að leiða mun rót- tækari kvennabaráttu en kvennaflokkarn- ir gera og vitna þá gjarnan til orða Juliett Mitchell: „við verðum að spyrja femín- iskra spurninga og reyna að gefa marxísk svör“. Annað stórverkefni þeirra er að koma karlkynsfélögum í skilning um hvað kvennabarátta er og í hverju raun- verulegt jafnrétti kynjanna felst. Að lokum eru hér spurningar Þuríðar Pétursdóttur, bæjarfulltrúa AB á ísafirði, sem hún sendi Kvennastefnunni: „Á hlutverk kvenna í pólitík að vera: — að greiða atkvæði? — að vinna fyrir flokkinn? — að styðja frambjóðendur? — að þrýsta á „kvennamálin“? — að passa uppá jafnréttið? — að skreyta lista? — að móta stefnu? — að vera í forystu? — Eiga konur að fara í framboð? Eiga þær að láta sér lynda 2. og 4. sætið — eða eiga þær að stefna á 1. og 3. sæti? — Eiga konur að temja sér vinnubrögð karlanna eða eiga þær að koma með nýjar aðferðir?" Ágúst 1985 KRISTÍN Á. ÓLAFSDÓTTIR 171

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.