Réttur


Réttur - 01.01.1986, Side 5

Réttur - 01.01.1986, Side 5
ADDA BARA SIGFTJSDÓTTIR: Fjögur ár Einræði — flokksræði — lýðræði Fyrir fjórum árum settist Davíð Oddsson í stól borgarstjóra í Reykjavík. Hann hafði að baki sér 11 fulltrúa Sjálfstæðismanna og þar með tveggja atkvæða meiri- hluta í borgarstjórn. Einmitt það skipti miklu máli fyrir einræðishneigðan borg- arstjóra. Nú gat enginn flokksmaður hótað með því að leika einleik, en ekki þarf að efa, að keppinautur Davíðs um efsta sæti listans og borgarstjóratignina, Albert Guðmundsson hefði vel getað hugsað sér að hagnýta slíka stöðu. Nú var þess enginn kostur, og Davíð tókst á skömmum tíma að verða einræðisherra í borg- arstjórn. A fyrra valdaskeiði Sjálfstæðisflokksins mátti með sanni kalla stjórn þeirra flokksræði, en þetta síðasta kjörtímabil er kjörtímabil einræðisins. Síðasta dæmið er skipun í stjórn Granda h/f. Þegar Sjálfstæðismenn höfðu lagt niður Bæjarútgerðina skipaði borg- arstjórinn einn og sjálfur alla menn borg- arinnar í stjórn hins nýja fyrirtækis. Þetta athæfi hafa allir minnihlutaflokkar í borg- arstjórn kært sameiginlega til félagsmála- ráðuneytisins, sem á að sjá um að sveitar- stjórnir fari að lögum. Sjálfstæðismenn eru miklar lýðræðis- hetjur í ræðum og ritsmíðum, en þegar kemur að stjórn Reykjavíkurborgar hent- ar fámennisstjórn þeirra hagsmunum best. Um að gera að sem fæstir borgar- fulltrúar séu til staðar til að fjalla um mál og vera með nefið ofan í því sem þeir, sem völdin hafa, eru að gera. Fyrsta atlagan gegn lýðræðinu í borgar- stjórn eftir kosningasigur Sjálfstæðis- nianna í maílok 1982 var gerð 3. júní. Þá var framkvæmdaráð borgarstjórnar lagt niður. Þetta var ráð, sem vinstri meiri- hlutinn hafði kornið á laggirnar til þess m.a. að fjalla um gatnagerð, holræsamál. sorphirðu, fasteignir borgarinnar og ýmis önnur framkvæmdamál. Á fundinum lögðu fulltrúar fyrrverandi meirihluta (Alþýðu- bandalag, Alþýðuflokkur og Framsókn- arflokkur) fram svohljóðandi frávísunar- tillögu: Sú tillaga Sjálfstœðisflokksins að leggja niður framkvœmdaráð er spor aftur á bak og til þess fallin að draga úr þekkingu borgarfulltrúa á verklegum framkvæmd- um á vegum borgarinnar og þar með möguleikum þeirra til að sinna skyldum sínum á þessu mikilvœga sviði með full- nægjandi hætti. Borgarráð getur engan veginn sinnt þessum yfirgripsmikla mála- flokki ásamt daglegri framkvœmdastjórn borgarinnar, enda var reyndin sú fyrir daga framkvœmdaráðs, að embættismenn og borgarstjóri Sjálfstœðismanna fjölluðu að mestu einir um þau mál, sem undir embœtti borgarverkfræðings falla, eftir að fjárhagsáœtlun hvers árs hafði verið samþykkt. Við leggjum því til að tillögu Sjálfstæðismanna verði vísað frá.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.