Réttur - 01.01.1986, Page 8
fjármálum borgarinnar í þokkalegu lagi.
Raunar er óverjandi að trúa Davíð fyrir
fjárhirslum borgarinnar eftir Ölfusvatns-
hneykslið. Par leyfði borgarstjóri sér að
kaupa jörð austur í Grafningi fyrir 60
milijónir króna. Borgin hafði enga þörf
fyrir þetta land og mun ekki hafa um
ófyrirséða framtíð. Fyrri eigendur hafa
áfram öll þau umráð yfir jörðinni sem
þeir geta haft gagn af, en kaupverðið
rennur skilvíslega úr borgarsjóði í vasa
þeirra næstu árin. Pað er ekki hægt að líta
framhjá því að fyrri eigendur eru af sterk-
um sjálfstæðisættum í borginni. Hér bias-
ir spiliingin við í óvanalega skýrri og ein-
faidri mynd.
Atvinnumál — Bæjarútgerðin
Atvinnulífið í borginni stendur ekki á
traustum grunni og lítið má útaf bera til
þess að hætta verði á verulegu atvinnu-
léysi. Við borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins lítum á það sem eitt af skylduverk-
um borgarstjórnar að vera sífellt á varð-
bergi gegn atvinnuleysi og efla atvinnulíf-
ið. Eftir ítarlegar viðræður við ýmsa
aðila sem vel þekkja til atvinnumála
lögðum við til í borgarstjórn 1. mars 1984
að atvinnumálanefnd borgarinnar hefði
forystu um framkvæmd eftirtalinna verk-
efna.
/. ... Að gerði verði skrá um vöruteg-
undir, sem fluttar eru inn en œtla
mœtti að framleiða megi hér á landi.
2. A grundvelli þeirra upplýsinga, sem
að framan greinir, verði gerðar til-
lögur um nýjar framleiðslugreinar í
borginni. Þar verði bœði um að rœða
greinar, sem unnt er að hefja störf við
strax á þessu ári, svo sem léttan iðnað
(smáiðnað) ýmis konar. Jafnframt
verði lögð aukin áhersla á aðstoð við
rafeindaiðnað, auk þess sem gerð
verði áætlun um fleiri störf á næstu
árum.
3. Reykjavíkurborg leitist við að greiða
fyrir stofnsetningu nýrra fyrirtækja og
nýrri fjarfestingu þeirra, sem fyrir eru
á þeim sviðum framleiðslustarfsem-
innar, sem vænlegust er talin. J því
skyni verði m.a. beitt eftirfarandi ráð-
stöfunum:
a. milligöngu um útvegun lánsfjár
eða framlaga frá atvinnuleysis-
tryggingasjóði, byggðasjóði, fram-
kvæmdasjóði og fleiri aðilum til
þess að efla atvinnulíf í Reykjavík
og koma í veg fyrir, að atvinnu-
leysi skapist í stórum stíl.
b. ábyrgðir vegna lántöku, þar sem
það á við.
c. frestun og hugsanlega tímabundna
lækkun eða niðurfellingu opin-
berra gjalda til borgarsjóðs vegna
nýrra framleiðslufyrirtækja eða
verulegrar endurfjárfestingar
þeirra, sem fyrir eru.
d. stofnaður verði iðnþróunarsjóður
Reykjavíkur, sem yrði t.d. fjár-
magnaður með hluta af aðstöðu-
gjaldi.
e. framlagi áhættufjármagns í sér-
stökum tilvikum.
f. beinni þátttöku í nýrri framleiðslu-
starfsemi t.d. með hlutafjárfram-
lögum, þar sem það á við.
g. fyrirgreiðslu og aðstoð við tækni
og upplýsingaöflun.
h. aðstoð og forgöngu um rannsókn-
ar- og þróunarstarfsemi fyrirtœkja
og iðngreina.
I öllum þessum atriðum verði lögð
sérstök rœkt við fyrirtœki í eigu starfs-
fólksins sjálfs og þau fyrirtœki, sem
8