Réttur


Réttur - 01.01.1986, Page 12

Réttur - 01.01.1986, Page 12
Par sem Reykjavíkurborg er enn fjarri því marki að geta boðið fram dagvistun fyrir öll börn, sem óskað er dagvistar fyrir, er nauðsynlegt að hraða uppbygg- ingu dagvistarheimila mun meira en nú- verandi meirihluti leggur til. Borgarstjórn samþykkir því að hækka framlag til dag- vistarheimila um 15 milljónir, sem yrði til að hraða byggingu dagvistarheimilis í Ar- túnsholti. Það er ekki nýtt að skortur sé á dagvist- arrýmum fyrir börnin í borginni, en hitt er nýtt að öllum rekstri dagvistar sé stefnt í voða með því að greiða svo léleg laun fyrir þau störf sem konur vinna þar að hróplegur skortur verði á starfsliði. Þetta gerðist á síðastliðnu hausti. Til þess að reyna að hafa áhrif á kjara- samninga konum í hag fluttum við eftir- farandi tillögu, sem reyndar var samþykkt í borgarstjórn. Borgarstjórn samþykkir að leita eftir því við Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar, að samningsaðilar kanni sérstak- lega fyrir gerð nœstu sérkjarasamninga röðun þeirra starfsheita í launaflokka, sem að meirihluta eru skipuð konum. Verði launaflokkaröðun þeirra starfsheita borin saman við röðun annarra starfs- heita. 1 nœstu sérkjarasamningum verði síðan gerðar breytingar á röðun í launaflokka á grundvelli niðurstaðna framangreindrar könnunar. Þegar barn verður 6 ára sleppa dagvist- ir af því hendinni, en skólinn verður því ekki það athvarf sem það þarfnast. Það hefur gengið mjög treglega að þoka fram breytingum í þessum efnum. Síðasta til- raun okkar var gerð 17. október á síðast- liðnu hausti. Þá lögðum við eftirfarandi fram: Borgarstjórn samþykkir að hefja tilraun með lengri dvöl yngstu fjögurra til fimm árganganna í skólum borgarinnar á þessu skólaári. Gerð verði könnun á því, hversu margir foreldrar hefðu hug á að notfœra sér slíka þjónustu. Að könnun lokinni yrði tilraun hafin í þeim skólum, þar sem aðstœður leyfa. Með börnunum verði kennarar og fóstrur. Vegna þessarar tilraunar verði samráð haft við menntamálaráðuneytið með hugs- anlega þátttöku þessi í kostnaði í huga. Tillaga þessi, sem er samhljóða tilögu fluttri af borgarfulltrúum Alþýðubanda- lagsins við gerð síðustu fjárhagsáœtlunar, er sett fram vegna þeirrar staðreyndar, að um 80% kvenna vinna utan heimilis, og því þörf á öruggum uppeldisstað fyrir börnin. Nœrri 3. hvert barn á aldrinum 7-12 ára, sem á útivinnandi foreldra, er nú á eigin vegum einhvern hluta dagsins. Skólabyggingar hafa ekki haldist í hend- ur við þarfirnar þessi fjögur ár. Aðeins í Grafarvogi hafa menn gengið rösklega til verks, en vandræðaástand hefur verið í Breiðholti og Vesturbænum. Árvissar eftirrekstrartillögur hafa hér engu um þokað. Gamla fólkið Á vordögum 1982 var verið að Ijúka við byggingu Droplaugarstaða, myndar- legu dvalar- og hjúkrunarheimili fyrir aldraða og teikningar voru fullbúnar af dvalarheimili í Seljahlíð fyrir 80 manns, en þá tók við nýr meirihluti í borgarstjórn 12

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.