Réttur - 01.01.1986, Side 13
og ákvað að halda að sér höndum. f»að
kostaði mikið þjark að ýta þeim úr spor-
unum, og fyrst nú er Seljahlíð að verða
tilbúin. Ekkert nýtt heimili fyrir aldraða
hefur verið tekið í notkun frá 1982, enda
lengjast biðraðir hinna öldruðu sífellt og
mikill fjöldi þeirra, sen þær raðir fylla,
býr við hreina neyð.
Sjálfstæðismenn boðuðu það fagnaðar-
erindi í upphafi valdaferils síns, að nú
skyldu fyrst og fremst byggðar söluíbúðir
fyrir aldraða. Eftir þeirri kenningu hefur
verið farið enda er það ódýrara fyrir
borgina. Gallinn er hins vegar sá, að fæst-
ir þeirra sem eru á biðlistum félagsmála-
stofnunar hafa nokkra möguleika á að
kaupa íbúð. Jafnvel þeir úr hópi hinna
öldruðu, sem eiga íbúð, geta ekki lengur
keypt nýja þjónustuíbúð fyrir andvirði
þeirrar gömlu. Nýju íbúðirnar eru orðnar
alltof dýrar.
Það var vel að verki staðið með bygg-
ingar fyrir aldraða á árunum 1975-1982
og það er mikil þörf á að hefja nú aftur
sókn.
Borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins
lögðu því eftirfarandi tillögur fram nú í
ársbyrjun:
/.
Borgarstjórn samþykkir að beita sér
fyrir samstarfi milli Reykjavíkurborgar,
}'íkisins og verkalýðshreyfingarinnar um
átak til bygginga þjónustuíbúða og dvalar-
heimila fyrir aldraða.
Miða skal við, að á nœstu 4-5 árum
verði leystur vandi a.m.k. 600 aldraðra
borgara.
Til undirbúnings þessa verkefnis sam-
bykkir borgarstjórn að verja kr. 5 milljón-
u,n á þessu ári.
II.
Jafnhliða uppbyggingu þjónustuíbúða
og dvalarheimila fyrir aldraða er brýnt að
efla hvers kyns starfsemi, sem miðar að
því að gera ellihrumu fólki kleift að dvelja
í heimahúsum.
Fjölgun stofnana, sem geta annast fólk
að degi til og boðið upp á fjölbreytilega
þjónustu, er án efa vœnlegast til árangurs
ásamt öflugri og vel skipulagðri þjónustu
á heimilum hinna öldruðu.
Borgarstjórn samþykkir því eftirfarandi
aðgerðir á árinu 1986:
1. Fest verði kaup á húsi í einhverju af
eldri hverfum borgarinnar og gerðar
þar nauðsynlegar breytingar vegna
reksturs dagþjónustu. Gert verði ráð
fyrir 8 milljón króna framlagi úr
borgarsjóði vegna þessa verkefnis.
2. Komið verði á sendiþjónustu fyrir
aldraða og fatlaða í borginni. Ráðinn
verði starfsmaður vegna þessa verk-
efnis og honum tryggð afnot afbifreið.
A þessu ári verði varið kr. 1.7 mill-
jónum til þessarar starfsemi, sem
skiptist í stofnkostnað vegna bifreiðar
og rekstur. Reglur um þjónustuna
verði settar af borginni í samráði við
þá aðila, sem þjónustunnar eiga að
njóta.
3. Heimilisaðstoð verði veitt um helgar,
þar sem þörf krefur og framlag til
heimilishjálpar hœkkað um 2 miljónir
í þessu skyni.
Þetta þóttu Sjálfstæðismönnum vondar
tillögur.
Unglingarnir
í minnispunktum úr stefnuskrá Sjálf-
stæðismanna fyrir borgarstórnarkosning-
ar segir svo orðrétt:
13