Réttur - 01.01.1986, Side 30
Jón Helgason
30. júní 1899 — 19. janúar 1986
Jón Helgason prófessor og vísindamaður íslenskrar tungu og fræða er hniginn
til foldar. Enn eitt af þeim mikilmennum andans, fæddum um aldamótin, sem
hófu um miðbik aldarinnar íslenska menningu, skáldskap og list, til æðstu reisn-
ar, er hún hefur öðlast, hefur nú kvatt.
Hann vann sem vísindajöfur tungu
vorrar og fornbókmennta þau afrek, er ei
munu firnast. Hafa aðrir gert betri grein
fyrir því stórvirki og mun ég eigi reyna
um það að fjalla. Þakkirnar til hans fyrir
þau verk verða þar ein að nægja.
En það er hið stórfenglega, — einkenn-
andi fyrir þjóðarsál vora og sameiginlegt
fleirum af bestu vísindamönnum vorum,
— að hann er um leið eitt af stórskáldum
vorum, sem með ódauðlegum ljóðum
lyftir íslenskum ættjarðarljóðum aftur
upp á þann hæsta tind, sem þau hafa náð.
„Afangar“ eru eitthvert fegursta, kyngi-
magnaðasta kvæði, sem ort hefur verið á
íslenska tungu, líf og draumar kynslóð-
anna öld eftir öld ofið inn í þennan dýrð-
aróð þjóðar í nauð, sem andlega aldrei lét
bupast.
I ljóðlist hans rennur saman tign og
30