Réttur


Réttur - 01.01.1986, Page 43

Réttur - 01.01.1986, Page 43
eitthvað líklegur að styrkja ykkur í þessu bölvaða ráðleysi og flandri að trufla vinn- andi fólk? Andskoti að nokkur stéttarbaráttun- eisti er í ykkur nema þá úr þessari auðnu- leysis og kjaftablaðurs-stétt sem alltaf er að stækka. Hann lyfti hnallinum upp og þjappaði niður hægt og gætilega fyrir næstu tvær hellur. Það varð að þjappa mjög vandlega en þó gætilega því ekki mátti missa hnall- inn í þær hellur sem búið var að leggja. Af langri reynslu var hann búinn að fá til- finningu og taugar fyrir þessu þjöppu- standi og reyndar líka titring í axlarliðina. Það var erfitt að lyfta hnallinum svona upp undir brjóst og láta hann svo falla, falla niður í sandinn aftur. Það dúaði undan hnallinum og maður dúaði sjálfur, titraði, hríslaðist til. Þó var þetta lífið, sjálf lífsafkoman, að vinna fyrir sér og máski megin tilgangur mannanna á jörðu hér. Reyndar vissi hann það ekki fyrir víst, aldrei hafði hann lært neitt nema •eggja hellur, þjappa og jafna undirstöðu að nýjum stéttum. Meiri lifandis ósköpin sem þurfti af stéttum í þessari borg; allir, hreint allir, vildu hafa stéttir en hver vildi svo sem jafna eða þjappa. Og víst var gott að hafa nóg að gera, langan vinnu- tíma það var þó undirstaðan að efna- skiptum og lifibrauði, já, reyndar grunn- ur allra stétta í borginni og þó víðar væri leitað. Stéttir eru líka til margra hluta nytsam- legar og sannkallað augnayndi sem mað- ur getur speglað sig í þegar blotnað hefur á. Þá er og hægt að spranga um þær á góðviðrisdögum og spá í götulífið. Ekki þarf að óttast misfellur eða agnúa ef vel hefur verið hnallað og undirlagið með réttri kornastærð, dyggilega þjappað. Líka vita það allir að við lifum í frjálsu lýðræðislandi og höfum breiðar og víð- áttu miklar stéttir. Sem hreint ekki rekast hver á annarra horn eða mynda þröskulda og bólgur vegna ólgu í undirlaginu. Það er mikill vandi að fella stéttir og þarf al- veg ótrúlega þolinmæði. Leggja hverja einstaka hellu að annarri, jafna þær og hallamæla. Þær voru sem einstaklingar í þjóðfélaginu, hver með sínu snitti að þykkt og lengd, ærið misjafnar, en þó í höfuðdráttum allar eins. Þannig var það líka í mannlífinu að mennirnir voru allir eins, samt var það svo ef betur var að gáð þá voru þeir ekki einu sinni líkir og vandalaust að þekkja þá í sundur. Á því var samt enginn minnsti vafi að niðurlagning hinria einstöku steina og réttleiki þeirra var hreint og klárt yfir- borðs atriði. Höfuðatriðið var auðvitað hin efnislega undirstaða, kornastærð og traustleiki jarðvegsins. Hafði líka oft sagt það við verktakann hérna — þær endast ekki lengi þessar stéttir, jarðsambandið er ógott og blekkjandi. Þær munu bólgna upp og rotna því það er kalt stríð neðan frá í frostum en þungi og kröfur hins heimtufreka mannlífs að ofan. Og þær munu splundrast, agnúar, brúnir og þröskuldar koma í Ijós og skýrast þegar þær byltast um og mennirnir verða aftur að ganga á jörðinni eins og hún kom úr hvolfinu. „En þá verð ég búinn að fá annað verk í öðru hverfi“, sagði taki — hann var alltaf að hugsa um sína mjög svo tímalegu vel- ferð og ágóðahlutinn. Alls konar fólk streymdi fram hjá þeim í báðar áttir en gaf þeim ekki gaum. Það var ekki tiltökumál að unglingspiltur og erfiðismaður ræddu saman á gangstétt. Það vantaði heldur ekki viðmælendur þetta fólk sen hraðaði leit sinni að lífsfyll- ingunni, sem alltaf gat verið rétt að sleppa frá manni. Hún virtist jafnvel vera 43

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.