Réttur


Réttur - 01.01.1986, Qupperneq 48

Réttur - 01.01.1986, Qupperneq 48
mannasamband íslands“, hiö fyrsta, þótt skammlíft yrði, deyr 1910. Guðjón Baldvinsson3 frá Böggvis- stöðum vekur á þessum fyrsta áratug aldarinnar þá tvo menn til hugsunar um og baráttu vegna þjóðfélagshreyfinga, þá Jónas frá Hriflu og Ólaf Friðriksson, sem áttu eftir að vinna stórvirki og setja mark sitt á rísandi þjóðfélagshreyfingar. Og áratug eftir að „Alþýðublaðið“ gamla hóf göngu sína hafa þær stórbreyt- ingar gerst, sem leggja grundvöllinn að því nútíma íslandi stéttabaráttunnar, sem við þekkjum. 1911 hóf Jónas frá Hriflu að rita sínar harðvítugu árásargreinar á auðvaldsþjóð- félagið í Skinfaxa, tímarit ungmennafé- laganna. 1913 hóf Verkamannafélagið Dagsbrún að gefa út „Verkamannablaðið“, mest- megnis undir ritstjórn Péturs G. Guð- mundssonar, blað, er helgaði sig sósíal- ismanum og reit Porsteinn Erlingsson og nokkrar greinar í það. Kom það út fram á árið 1914 (frá maí 1913 til janúar 1914). 1915 stofnaði Ólafur Friðriksson „Jafn- aðarmannafélagið“ á Akureyri hið fyrsta á íslandi. í þessu blaði birtir Ólafur fyrstu stefnu- skrá sósíalista á íslandi.4 Mörg verkalýðsfélög höfðu verið stofn- uð víða um land á þessum árum5 og með árunum 1914 til 1916 rísa upp hin sterku verkalýðssamtök framtíðarinnar í Reykja- vík. 25. okt. 1914 höfðu konur stofnað Verkakvennafélagið Framsókn. Stjórn þess var í upphafi: Jónína Jónatansdóttir formaður, Karolína Siemsen varaformað- ur, Bríet Bjarnhéðinsdóttir ritari, Jónína Jósefsdóttir fjármálaritari og María Pét- ursdóttir gjaldkeri. 68 konur voru stofn- endur, en félagar voru 13. des. orðnir 98. 10. júlí 1915 hóf blað jafnaðarmanna „Dagsbrún“, útgefendur: nokkur iðnað- ar- og verkamannafélög, göngu sína und- ir ritstjórn Ólafs Friðrikssonar6. Hásetafélag Reykjavíkur er stofnað í október 1915. Aðalforgöngumaður Jón Guðnason, en þeir Ólafur Friðriksson og Jónas frá Hriflu komu þar og við sögu. 26. janúar 1916 lögðu svo þessi verkamanna- og sjómannafélög út í fyrstu hörðu kosningabaráttu sína í Reykjavík og fengu við bæjarstjórnarkosningarnar 26. janúar 1916 3 menn af 5 kosna í bæjarstjórn: þá Jörund Brynjólfsson, Ágúst Jósefsson og Kristján V. Guð- mundsson. Jörundur Brynjólfsson var einnig á þessu ári kjörinn formaður Verkamanna- félagsins Dagsbrúnar og í október 1916 kjörinn alþingismaður í Reykjavík, fyrsti þingmaður, studdur af jafnaðarmönnum. Þetla ár, 1916, markar tímamótin í stjórnmálasögu Islands. Alþýðusamband íslands, sem um leið er Alþýðuflokkur, fyrsti sósíalistaflokkur á íslandi, er stofnað 12. mars 1916. For- seti var fyrstur kosinn Ottó IV. Þorláksson og síðar Jón Baldvinsson. Sama ár hefur „Réttur“ göngu sína með Þórólf Sigurðsson í Baldursheimi að ritstjóra. Og í fyrsta árgangi hans birtist fyrirlestur Þorsteins Erlingssonar: „Verka- mannasamtökin“, er hann hafði haldið \ Dagsbrún sunnudaginn milli jóla og nýárs 1912 og ennfremur grein Benedikts á Auðnum „Stríðið“, þar sem hann skil- greinir réttilega hinar þjóðfélagslegu ræt- ur stríðsins, enda hófst greinin með til- 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.