Réttur - 01.01.1986, Page 54
Einingarganga á „Unter den Linden“.
að þjóðfélagslegum veruleika. Launþegar
unnu sigur í sósíalísku hyltingunni, þeir
náðu fram baráttumálum róttækrar
þýskrar verkalýðshreyfingar.
i samræmi við markmið alþjóðahyggju
öreiganna og alþjóðlega samstöðu telur
SED sig eiga samleið með öllum
flokkum, hreyfingum og þjóðum, sem
berjast fyrir þjóðernislegri og þjóðfé-
lagslegri frelsun. Flokkurinn tekur hönd-
um saman við öll þau öfl skynsemi og
raunsæis sem vilja tryggja friðinn. SED
hefur ávallt reynst vera leiðandi, skap-
andi og skipuleggjandi kraftur verkalýðs-
stéttarinnar og vinnandi fólks í DDR. A
komandi XI. flokksþingi SED í apríl 1986
munu fulltrúar ræða og ákveða ný verk-
efni við uppbyggingu og þróun sósíalíska
þjóðfélagsins í DDR og baráttuna fyrir
viðhaldi friðarins sem ná allt fram til árs-
ins 2000. Vitundin um árangursríka
stjórnmálastefnu í fjóra áratugi gefur yfir
2 milljónum meðlima SED og öllum laun-
þegum í DDR nýjan styrk, traust og
bjartsýni.
[Lutz Priess er vísindamaður, sem starfar
við Stofnun Marxisma og Leninisma í
Berlín.
Sjá greinina „Fræðasetur marxismans '
Berlínarborg" í Rétti 1978, bls. 41-45.]
54