Réttur - 01.01.1986, Page 60
vinna sín verk í þögn og þolinmæði, þó
hún ætti ekki alltaf sjö dagana sæla, eftir
því sem ég heyrði sagt. Loks kemur að
því, að Bjagga leggst á sæng og eignast
dreng, sem sagt var að hefði verið mjög
efnilegur. Hún fékk víst að liggja þarna
sængurleguna, en það var víst ekki meira
en svo, því þá þurfti hún að segja til um
faðerni barnsins, og var það Árni, sonur
hjónanna Jakobs og Þuríðar. Ekki fékkst
amma drengsins til að líta á hann, en þá
kom séra Sigurður í Vigur, sem lét sér
ekkert mannlegt óviðkomandi og var
ævinlega málsvari lítilmagnans, og skírði
drenginn Harald Árnason, svo Þuríður
varð að láta í minni pokann fyrir vinnu-
konunni. Ekki hefur þetta verið áreynslu-
laust fyrir Bjöggu, að standa frammi fyrir
þessu ofurefli, en hún stóð fast á sínu,
því hún vissi, að hún hafði réttinn sín
megin.
Nú hrekst hún burtu frá þessu heimili í
Ögri. En Guð leggur öllum líkn með
þraut, því hjónin Andrés og Þorbjörg á
Blámýrum bjóðast til að taka drenginn og
ala hann upp sem sinn eigin son, sem
þeirra var von og vísa. En þau hjónin, sr.
Sigurður og frú Þórunn í Vigur, ráða
Bjöggu til sín sem eldhússtúlku, og þá sá
ég Bjöggu í fyrsta sinn, og ætla nú að lýsa
því, hvernig hún kom mér fyrir sjónir. Ég
tók alltaf vel eftir fólki sem kom á Vigur-
heimilið og þegar ég sá Bjöggu í fyrsta
sinn, veitti ég henni sérstaka athygli af
því ég hafði heyrt svo mikið um hana
talað: Hún var frekar lágvaxin, andlits-
fríð og skipti vel litum, sérlega munnfríð
og með óvenjulega hvítar og jafnar
tennur, handsmá og fótnett, þótt hendur
hennar sýndu, að hún hefði ekki setið við
hannyrðir um dagana. Og einmitt þennan
sama dag, sé ég hana bera vatn í fötum
með vatnsbera.
Um þetta leyti kemur ungur piltur, 17-
18 ára að mig minnir, á heimilið í Vigur,
Gunnar Benediktsson, bróðir Ingigerðar
Benediktsdóttur, konu Guðmundar And-
réssonar kunnur maður í Bolungarvík.
Móðir hans var orðin ekkja, og var hann
henni eitthvað erfiður, svo hún kom hon-
um fyrir í Vigur. Nú líður tæpt ár, og þá
veitir fólk því athygli, að Bjagga fer að
þykkna undir belti, en hún heldur áfram
ótrauð sínu starfi, þó henni hafi kannski
ckki alltaf liðið vel, en hún bar það með
hetjuskap. Svo kemur að því, að Bjagga
kennir sín, og er þá brugðið skjótt við og
ljósmóðir sótt út í Álftafjörð, þar sem
hún var búsett, og eignast Bjagga þá tví-
bura, sem mig minnir hafi verið telpa og
drengur, og kennir hún Gunnari Ben-
ediktssyni börnin. Ekki ætlaði hann nú að
meðganga, en Bjagga sat við sinn keip,
svo hann meðgekk á endanum. Nú var
börnunum báðum komið fyrir, hvoru á
sínu heimili, á vegum hreppsins. Þannig
var, að fósturforeldrar mínir voru að
flytja búferlum frá Vigur að Hóli í Bol-
ungarvík, og þau réðu Bjöggu til sín sem
eldhússtúlku, og þar kynntist ég Bjöggu
nánar en ég hafði áður gert. Nú líður
tíminn, tæpt ár að mig minnir, þá fær hún
bréf, þar sem henni er tilkynnt lát annars
tvíburans. Ekki sá ég að Bjöggu brygði
við þetta, heldur virtist hún þakka for-
sjóninni þessa lausn, að barnið þyrfti ekki
að flækjast manna á milli, því oftast var
það svo, að börn lentu þar sem lægst var
boðin meðgjöf, þó að líðan þeirra væri
ekki að sama skapi góð. Stuttu eftir þetta
fær Bjagga aðra tilkynningu um að hinn
tvíburinn sé iátinn.
Nú líða fram stundir, og Bjagga vinnur
verk sín með prýði, því það sem hún vann
gerði hún vel. Við Bjagga unnum mikið
saman, og fór hún oftast seinust í háttinn.
60