Réttur


Réttur - 01.04.1975, Síða 1

Réttur - 01.04.1975, Síða 1
iffiur 58. árgangur 1 975 — 2. hefti Sú hallærisstjórn, er nú situr að völdum, hefur þegar leitt af sér stórfellt vandræðaástand fyrir þjóðina. Stórvirkustu togararnir hafa þegar legið bundnir í tvo mánuði af hennar völdum. Stærstu ríkisverksmiðjurnar voru lokaðar í þrjár vikur sökum þrákelkni hennar. Og framundan eru einhver víðfeðmustu átök í sögu verkalýðshreyfingarinnar, — nú þegar þetta er skrifað, 6. júní. Það er ekki hægt að stjórna íslandi á móti verkalýðnum, — og hver tilraun, sem gerð er til þess hlýtur því að baka landinu gífurlegt tjón og leiða bölvun yfir þjóðina. En giftusnauð og skammsýn braskarastétt landsins gerir síð- ustu 30 ár hverja tilraunina á fætur annarri til þess ómögulega — og grípur því hvað eftir annað til þrælalaga — eins og nú síðast, sem hún síðan ámát- lega verður að gefast upp við. öll viðleitni þessarar yfirstéttar og stjórnar hennar miðast við það eitt að gera skortinn að skömmtunarstjóra: láta kaup- getuskort almennings ráða innkaupum til landsins, svo ,,hið frjálsa mark- aðskerfi" fái staðist og beri sín blóm: atvinnuleysi og verðbólgu. 81

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.