Réttur - 01.04.1975, Page 3
Ho Chi Minh:
Úr „ERFÐA-
SKRÁ" Rituð
10. maí 1969.
Birt í Rétti
1969 bls.
117-118.
„En hvað sem yfir dynur, verSum við að vera ákveðnir í að berjast gegn bandarísku
árásarmönnunum uns fullur sigur er fenginn.
Fljót vor, fjöll vor, fólk vort mun ætíð verða, að Bandarikjunum sigruðum
munum vér reisa land vort úr rústum tíu sinnum fegra en fyrr.
Hvaða erfiðleikar sem kunna að bíða okkar, þá mun fólk vort örugglega vinna fullan
sigur. Bandarisku heimsvaldasinnarnir munu verða að hverfa á brott. Föðurland okk-
ar verður sameinað. Landar vorir í norðri og suðri munu sameinast undir einu þaki.
Það verður táknrænn heiður lands vors að vera smáþjóð, sem í hetjulegri baráttu hef-
ur sigrast á tveim voldugustu heimsvaldastefnum, — hinni frönsku og amerísku, —
og innt af hendi mikilsvert framlag til þjóðfrelsishreyfingar heimsins11.
83
L