Réttur - 01.04.1975, Qupperneq 4
VONBJARTASTI SIGUR
VERALDARSÖGUNNAR
- OG VIÐ
Fátæk, sögurík hetjuþjóð Vietnama hefur sigrast á ægilegasta herveldi heims, Banda-
ríkjunum, eftir ótrúlegustu fórnir í þágu freisis síns.
Þrjátíu ára frelsisstríð er til lykta leitt með fullum sigri: 2. september 1945 hafði Viet-
nam lýst yfir sjálfstæði sínu með skírskoíun til frelsisyfirlýsingar amerísku byltingar-
innar, en franska nýlenduveldið síðan svikið alla samninga um sjálfstæði og ráðist
á landið. Það var hinsvegar bandaríska auðvaldið sem borgaði — og tók svo síð-
ar við handverki ræningjanna og morðingjanna eftir ósigur Frakka við Dien Bien Phu
1954.
Að atomárásunum á Hiroshima og Nagasaki undanteknum hefur aldrei verið beitt
eitraðri og níðingslegri baráttuaðferðum í styrjöld, en þeim, sem grimmasta stórveldi
heims, Bandaríkin, beittu í árásarstyrjöld inni á Vietnam.
Með lygunum um Tonkinflóa-árásina að yfirvarpi hóf Bandaríkjastjórn opinbera inn-
rás sina, með múgmorðum á varnarlausu fólki rak hún hana — og með smán
ósigursins að baki flýr her hennar 03 leppa hennar á vit bandarísku þjóðarinnar, sem
blekkt hefur verið og tryllt með ósannindaáróðri þessa áratugi
Það eru mikil fyrirheit, sem hetjuþjóð Vietnam gefur öllum smáþjóðum, öllum lítil-
mögnum og smælingjum veraldar, að sanna í verki að sigrast megi á þvi ægivaldi
auðs og hers, sem Bandaríkin eru.
Sigur Vie'.nama yfir BandaríkjaauSvaldinu og
leppurn þess er sigur huga og hjarta yfir herbákni
og auði, sigur siSgæðisþróttar yfir spillingu og of-
beldi. Það er sá frelsisandi amerísku byltingarinnar
1776, — sem gaf uppreisnarmönnum breskra ný-
lendna máttinn til að sigra bresku kúgarana, —
sem hefur nu tveim öldum siðar sigrast á svikun-
um við hugsjón byltingarinnar, — það er andi
George Washingtons og Ho Chi Minhs sem sigrast
nú á spillingar- og svikaveldi Johnsons og Nixons.
84