Réttur - 01.04.1975, Page 15
Tveir söngvar
ur leikriti Bertolts Brechts MÓÐIRIN
LOFGJÖRÐ UM KOMMÚMISMANN
Hann er skynsamlegur, allir skilja hann. Hann er Ijós.
Þú ert enginn arðræningi, þú berð skyn á hann.
Hann er þér í hag, kynntu þér hann.
Heimskingjar kalla hann heimsku og soramenni kalla hann sora.
Hann er á móti sora og á móti heimsku.
Arðræningjar kalla hann glæp.
En við vitum:
Hann útrýmir glæpum.
Hann er ekki villimennska heldur
Útrýming villimennsku.
Hann er ekki öngþveiti
Heldur regla.
Hann er hið einfalda
Sem torvelt er að framkvæma.
LOKASÖNGUR MÓÐURINNAR (Pelageu Wlassowa)
Hver sem ennþá lifir, segi ekki aldrei!
Hið örugga er ekki öruggt
Svosem allt er, veröur það ekki.
Þegar stjórnendurnir hafa talað
Munu þeir svara sem stjórnað er.
Hver vogar sér að segja aldrei?
Á hverjum veltur hvort kúgunin helst? Á okkur.
Á hverjum veltur hvort hún verður buguð? Á okkur.
Hver sem barinn var, rísi upp!
Hver sem glataður er, berjist!
Úr því staða þín er þér kunnug, hvað fær þá hindrað þig?
Því hinir sigruðu í dag verða sigurvegarar á morgun
Og aldrei verður: þegar nú.
Erlingur E. Halldórsson sneri.
95