Réttur - 01.04.1975, Page 25
Bram Fischer
I.
Dauði
Bram Fischers
Abram Fischer andaðist í maí sl. Hann
hafði setið níu ár í dýflissunni á Robben
Island og þjáðst siðustu mánuðina af
krabbameini, er einnig var komið í heil-
ann, svo hann var oft meðvitundarlaus.
Fasistasíjórn Suður-Afríku þverskallaðist
við öllum kröfum víðsvegar að um að lofa
honum að fara heim til sín til að deyja,
uns hún loks lét undan, er hún var alveg
viss um að hann væri í andarslitrunum
og ófær til að beita sér. Svo mjög óttað-
ist hún þennan mann fram í andlát hans.
II.
Einn göfugasti maður
heims hefur nú orðið
fórnarlamb fasismans
Abram Fischer er dáinn. Ríkisstjórn
hinna hvítu níðinga í Suður-Afríku ber á-
byrgð á dauða hans. Blóð hans mun
koma yfir þessa böðla og þeirra fylgjend-
ur, ef þeir ekki læra í tíma það, sem hann
reyndi að kenna þeim, er hann síðast
fékk að tala sem frjáls maður fyrir rétti.1’
Bram Fischer var í lifanda lífi fordæmið
um yfirburði sósíalismans. Hann hafði
vegna gáfna, ættgöfgi og þjóðfélagsað-
stöðu möguleika á að verða hinn æðsti
valdamaður, var sjálfur Búi, tilheyrði hinni
drottnandi þjóð, — og hann skipaði sér
í fylkingarbrjóst hinna fátæku, ofsóttu og
hörundsdökku í baráttu þeirra fyrir frelsi,
jafnrétti og sósíalisma. Hann varði þá
sem slyngur lögfræðingur fyrir ofsóknar-
réttum hvítu Pílatusanna. Hann skipulagði
þá til leynilegrar baráttu, þegar lög
drottnaranna bönnuðu hina löglegu. Hann
fórnaði frama, auði og völdum og að lok-
um frelsinu og lífinu, til þess að reisa
við hina kúguðu, svo þeir mættu hrinda
af sér okinu.
Það eru til menn, sem dást að Jesú frá
Nasareth enn eftir 2000 ár og hefja hann
jafnvel upp í guða tölu — og þykjast
þessvegna öðrum mönnum betri, — en
þegja slíka menn sem Abram Fischer í
hel — og fordæma svo sósíalismann sem
óalandi og óferjandi vegna illverka, sem
unnin hafa verið í hans nafni, svo sem
kristin kirkja löngum hefur iðkað að
fremja og blessa illvirki í nafni Jesú frá
Nasaret. Líf og fórn manna sem Abram
Fischers þvær skjöld sósíalismans hrein-
an á ný, endurreisir hann í öllum sínum
hugsjónalegu og andlegu yfirburðum.
Mannkostir Abram Fischers, sem stóð-
105