Réttur - 01.04.1975, Side 41
fasismanum berst út á vígvellina. Kínverski
kommúnistaflokkurinn hafði 1935 einmitt lokið
„löngu herferðinni“, er kostaði yfir 200.000
mannslíf rauða hersins. í alþjóðasveitinni á
Spáni berjast 35.000 sjálfboðaliðar, helmingurinn
flokksbundnir kommúnistar úr 54 löndum — og
láta þar lífið þúsundum saman. Og þegar nasism-
inn flæðir yfir lönd Evrópu, eru það fyrst og
fremst kommúnistarnir, sem láta lífið: Kommún-
istaflokkur Tékkóslóvakíu hafði 52.000 flokksfé-
laga í stríðsbyrjun, helmingur þeirra dó í fanga-
búðum eða var drepinn af nasistum. 1 Kommún-
istaflokki Júgóslavíu voru 12.000 í stríðsbyrjun,
í stríðslok 141.066, — en yfir 50.000 höfðu látið
lífið í frelsisbaráttunni. Franski kommúnista-
flokkurinn gekk eftir stríð undir nafninu „flokk-
ur píslarvottanna“, sökum gífurlegra fórna sinna.
Og þannig mætti lengi telja.
Þetta mannval Komintern í öllum þessum
flokkum er vafalaust það besta, sem nokkur sósí-
alistísk alþjóðasamtök hafa eignast. Og einmitt
svona mannval er forsenda sigurs fyrir málstað-
inn, hvort sem um er að ræða stundarsigra með
þeirri bardagaaðferð, sem beitt er hverju sinni,
eða úrslitasigurinn að lokum.
Stephan G. Stephansson orðaði þctta svo í
„Martius":
„Æ í starfi oddvitans
allt sem vannst, til harms og gleði,
það var fylgdin foringjans,
fyrst og síðast, er sköpum réði.“
En hvað um leiðtogana, foringja kommúnista-
flokkanna á þessu skeiði? í þeirra höndum var
það hvort mannvalið í flokkunum hagnýttist til
fulls miðað við aðstæður, þegar það á annað
borð var gott.3) Ábyrgð þeirra var mikil og nauð-
synlegt fyrir sósíalistísku hreyfinguna einnig nú
að átta sig á því til fulls í hverju sú meinsemd
lá, sem hindraði að kommúnistar áttuðu sig á
réttum viðbrögðum gagnvart nasismanum í tíma,
þrátt fyrir það ágæta mannval, sem var í flokk-
um þeirra, og þá fjölmörgu ágætu foringja, sem
þeir áttu.
II.
Foringjarnir
Sem dæmi um þá forustumenn. sem kommún-
istaflokkarnir eiga, þegar við Bi'ynjólfur komum
sem fulltrúar K.F.Í. á 7. heimsþingið, skal nefna
hér nokkra, sem ýmist eru á þinginu eða koma
til Moskvu og dvelja þar um það leyti:
Gcorgi Dimitroff hafði komið til Moskvu í
febrúar 1934 beint úr fangelsi nasista, eftir að
hafa í Leipzig afhjúpað nasismann og glæpi hans
svo rækilcga frammi fyrir heiminum að vörn
snerist upp í sókn og andlegir yfirburðir marx-
ismans voru sannaðir þannig að alhcims aðdáun
vakti. Fyrsta alvarlega árásin á nasismann kemur
frá hlekkjuðum fanga í dýflissu hans; fyrsta
áskorunin um einingu andfasistískra afla.
Palmiro Togliatti var foringi ítalska kommún-
istaflokksins, sem þá var auðvitað bannaður.
Hann hét Ercoli þar eystra. Hann mótaði síðan
þá djörfu og sjálfstæðu stefnu, sem gert hefur ít-
alska flokknum fært að fylkja næstum þriðjungi
ilala um sig. — Báðir fluttu þeir Dimitroff höf-
uðframsöguræður þingsins.
Ho Chi Minli. hinn heimsfrægi foringi Víet-
namþjóðarinnar, einn af göfugustu og vitrustu
stjórnmálaleiðtogum heims, bar á þinginu nafnið
Nguycn Ai Quoc. Hann hafði komist til Moskvu
úr fangelsi í Hong Kong, — var raunar sagður
dauður og syrgður í Moskvu 1933. Það sannast
oft sem Lenín kvað: „Við kommúnistar erum
dauðir menn í orlofi.“ Ho Chi Minh var kosinn
varamaður í stjórn Komintern, en aðalmaður frá
Víetnam-flokknum var Lc Hong Phong, sem
nokkru síðar fór til Indókína, var tekinn fastur
og dó í fangelsi. Kommúnistaflokkur Víetnam
var stofnaður og tekinn í Komintern sama ár og
Kommúnistaflokkur fslands -— 1930.
Dolorcs Ibárruri, heimsþekkt, ekki síst úr
spönsku borgarastyrjöldinni, undir nafninu Passi-
onaria. var einn besti leiðtogi spánska kommún-
istaflokksins, eldmóði fylltur ræðuskörungur og
baráttumaður. Hún bjó á sama hóteli og við
Brynjólfur. Passionaria lifir enn — og goðsögn-
in um hana deyr aldrei.
Harry Pollitt var hinn raunsæi leiðtogi breska
kommúnistaflokksins. ef til vill sá foringi komm-
únista, sem best vissi hvaða bardagaaðferð var
réttust haustið 1939 .þegar mest var þörf á sjálf-
stæðri slefnu i Vestur-Evrópu.
Öll þau, sem nefnd eru hér að framan voru
kjörin í miðstjórn Komintern á þinginu og auk
þeirra menn, sem voru fjarverandi, en eru nú
121