Réttur - 01.04.1975, Side 49
samfylkinguna í tíma og stemma á fasismans að
ósi, — en dásamlegt að sigur skyldi þó að lokum
vinnast. Sú dýrkeypta reynsla má aldrei fyrnast.
VI.
Og enn vofir
hættan yfir
Enn vofir hætta yfir mannkyninu frá yfirstétt,
sem tryllist og hefur nú gereyðingarvopn atóm-
sprengjunnar undir höndum.
„Ekkert villidýr er grimmara en auðmaðurinn,
sem óttast um auð sinn og völd,“ var eitt sinn
sagt.
Auðmannastétt Bandaríkjanna hafði grætt of-
fjár á heimsstyrjöld þeirri, er kostaði 55 miljónir
manna lífið. Hún hugðist drottna yfir heiminum
í krafti atómsprengju og auðmagns. Ofstæki
drottnunargirni hennar hefur hálfbrjálað heiminn
í þrjátíu ár — og gerblindað suma erindreka
hennar á íslandi. Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur
sett smánarblett á þjóð Abrahams Lincolns: Hún
hefur gerst mesta hryðjuverkastjórn heims til að
reyna að hindra fátæka nýlenduþjóð í að öðlast
frelsi. Hún hefur látið eitri, napalm-flísum og
sprengjum rigna yfir Víetnam, valdið dauða
1.700.000 karlmanna, kvenna og barna hjá þess-
ari hetjuþjóð.
í samanburði við stóriðju hryðjuverkamann-
anna í Washington eru hryðjuverkamenn Palest-
ínumanna eða Baader-Meinhof lélegir fúskarar. En
svo gcrsamlega tekst ofurmagni auðvaldsáróðurs-
ins að gera menn að andlegum umskiftingum að
fjöldi fólks á íslandi álítur stórglæpalýðinn í
Washington vera verndara frelsis og lýðræðis og
hikar ekki við að fela þeim „vernd“ fslands, þótt
yfir vofi ef til stríðs kæmi að það kostaði þjóð
vora lífið. Svo alger er forheimskvunin þegar
glæpir eins og í My Lai blasa við veröldinni, að
ofstækismenn íslenskir telja Víetnam hafa ráðist
á Bandaríkin til þess að freista saklausra Banda-
ríkjadáta til að fremja slík morð!14)
Veröldin þarf að vera á verði gegn þessu of-
stæki auðvaldsins.
Það ríður á að alþýða heims og ekki síst al-
þýðuríkin varist að láta ofstæki blinda sig eða
rétttrúnað leiða sig af réttri leið þeirrar samfylk-
ingar, er mynda þarf nú sem forðum.
Valdamenn alþýðustórveldanna þurfa að varast
að láta valdið — ríkisvaldið — stíga sér til höf-
uðs. Valdið — ríkisvaldið ekki síst — er í eðli
sínu alger mótsögn við hugsjón jafnt sósíalisma
sem samfylkingar, — en valdið, vald alþýðunnar,
er forsenda fyrir framkvæmd hvortveggja hug-
sjónarinnar. Ofstæki það, sem valdið getur skap-
að í alþýðuríkjunum, hefur þegar leitt til hörmu-
legustu illverka í heimi sósíalismans.15) Af því
þarf að ilæra, og læra til fulls.
Vald Sovétríkjanna er undirstaðan að valdi
sósíalismans í heiminum. Vald þeirra er það eina,
sem heldur villidýrinu í Washington í skefjum.
Bresjnef sýnir hæfileika sem stjórnskörungur stór-
veldis með samningum við Willy Brandt og Nix-
on. En hann á eftir að sýna sig sem mikill marx-
istískur leiðtogi með því að ná samfylkingu við
Mao og Dubcek.
Það þarf vald til að semja um vopnahlé við
voldugan andstæðing, cn það þarf umburðarlyndi
til að ná samstarfi við raunverulega samhcrja,
sem hafa á ýmsum sviðum ólíkar skoðanir.
Það umburðarlyndi þurfa margir voldugir leið-
togar kommúnistaflokka enn að læra.16) Lenín
kunni að vinna jafnt með Trotskí sem Bucharin
— og hann lagði áherslu á þörf umburðarlyndis
í erfðaskrá sinni.
Franskir kommúnistar og sósíaldemókratar
sýna nú sem 1934 alvarlega tilburði til samfylk-
ingar. Aðrir verkalýðsflokkar Vestur-Evrópu eiga
enn eftir að læra mikið, þó lexían 1939—45 hafi
verið dýr.
Á 30 ára afmæli sigursins yfir faslsmanum og
40 ára afmæli sigurs samfylkingarstefnunnar í
samtökum kommúnista er samfylking allra sósíal-
ista, lýðræðissinna og þjóðfrelsissinna heims
gagnvart atómhervæddu auðvaldi veraldar boðorð
dagsins. Þróun og myndun þeirrar þjóðfylkingar
mun einnig kenna valdamönnum sumra sóslalist-
ískra ríkja umburðarlyndi gagnvart samherjum og
varúð gagnvart því ofstæki, sem heimtar undir-
gefni þar sem jöfnuður og bræðralag eiga að
rikja.
...SKÝRINGAR:
*) Sbr. svar Ólafs Friðrikssonar á 10. þingi A.S.Í.
1930, er kommúnistar kváðu heimskreppu
129
L