Réttur - 01.04.1975, Qupperneq 58
ast fyrir því að þau séu stofnuð. Ennfremur skorar
þingið á stjórnina að komast í samband við áhuga-
sama verkamenn á þeim stöðum, sem engin verk-
lýðsfélög eru til á og reyna að mynda þar smá-
félög til undirbúnings reglulegri félagsstofnun."
Var ályktun þessi samþykkt með öllum atkvæðum.
3. mál. Fjárhagsáætlunin
Nefnd sú er kosin hafði verið til að semja
hana, skilaði nú tillögum sinum. Hafði Halldór
Friðjónsson framsögu. Var áætlunin á þessa leið:
FJÁRHAGSÁÆTLUN
fyrir V.S.N. fyrir árin 1925 og 1926.
Tekjur:
1. Skattar frá félögum Kr. 425,00
2. Óvissar tekjur — 75,00
Alls Kr. 500,00
Gjöld: Kr. aur.
1. Stofnkostnaður 40,00
2. Sifr(akostnaður & burðargjöld 60,00
3. Þinghald 25,00
4. Til útbreiðslu 300,00
5. Óviss útgjöld 75,00
Samtals Kr. 500,00
Akureyri 26/4 1935
Halldór Friðjónsson,
Gunnlaugur Sigurðsson,
Jón Kristjánsson.
Var áætlun þessi borin upp og samþykkt með
öllum atkv.
4. mál. 1. maí. Einar Olgeirsson minntist á að
gott væri að koma upp fundum í félögum VSN
1. maí.
Kjartan Jónsson áleit það gjörlegt á Siglufirði.
Gunnlaugur Sigurðsson hét því siðan að haldinn
skyldi verða fundur 1. maí á Siglufirði og máske
sem nokkurs konar útbreiðslufundur.
5. mál. Ávarp frá sambandsþingi V.S.N. til verk-
lýðsfélaga á Norðurlandi lagt fram eins og upp-
kast stjórnarinnar að því var. Samþykkt með öllum
atkvæðum.
6. mál. Tillaga kom fram um að prenta lögin. Var
hún samþykkt með öllum atkv. og falið stjórninni.
Fundargerð þingsins lesin upp í þinglok.
Síðan var stofnþinginu slitið.
Einar Olgeirsson
(ritari)."
138