Réttur


Réttur - 01.04.1988, Blaðsíða 32

Réttur - 01.04.1988, Blaðsíða 32
HELGI SELJAN: Fatlaðir — hvar mun liðsinnis að leita? Málefni fatlaðra og öryrkja á íslandi hafa tekið meiri stakkaskiptum en flest annað í íslen/ku þjóðfélagi, og er þá mikið sagt. Frá aumingjagæðum ölmusunnar og allsleysi sveitarómaganna hefur verið horfið yfír til almennrar velferðarsóknar í þágu þessa fólks, sjálfsbjargar þess þó máske helzt og fyrst. Sjálfkrafa hefur þetta ekki orðið, auðveld var baráttan fyrir rétti þessa hóps oft ekki, og enn í dag vilja alltof margir láta hag og hamingju þeirra fötluðu víkja fyrir ískaldri auðhyggjunni, þar sem æðsta hnossið fæst með því að hirða annarra arð — lifa á annarra striti — blómstra á kostnað eymdar annarra. Og fullt jafnrétti í verki til allra lífsins gæða er enn hvergi nærri í höfn — á grimmum húsnæðismarkaði okurvaxt- anna hlýtur öryrkinn að fara halloka — ef um atvinnu kreppir þá er fyrst fyrir að svipta þá henni, sem ekki ganga í öllu heilir til skógar — þegar nauðsynjar hækka umfram munaðarvöru og í engu fást bætur fyrir — þá er hinum fatlaða sem hefur enga tekjumöguleika aðra en tryggingabætur einar — þá er þeim hætt við alvarlegum áföllum. í upphafi var barátta fyrir rétti hins fatlaða í nær öllu samofin vaknandi hreyf- ingu verkalýðsstéttarinnar. Fylgdi ein- faldlega með sem einn þáttur þeirra nú sjálfsögðu mannréttinda, sem barizt var fyrir að ná fram. Síðar komu samtök fatlaðra sjálfra smám saman inn í myndina, en tengslin voru áfram og skópu betri viðspyrnu til llclgi Scljan. 80

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.