Réttur - 01.01.1989, Qupperneq 12
vegum menntamálaráðuneytisins til
að starfa við fræðsluskrifstofu Reykja-
ness til að sinna sérstöku þróunar-
starfi um stöðu kynjanna í skólum.
Peir munu halda námskeið og
fræðslufundi fyrir kennara á haust-
önn 1989. Þetta starf fór af stað á
vegum nefndar um jafna stöðu kynja
í skólum. Á vegum nefndarinnar
kemur út bæklingur fyrir kennara
næsta haust og haldin verður ráð-
stefna um þetta málefni í lok sept-
ember n.k.
12. Ráðinn var kennari að Kvennaat-
hvarfinu í Reykjavík til að tryggja að
börn sem þar dvelja fái áfram
kennslu.
13. í undirbúningi er stofnun neyðarat-
hvarfs hér í Reykjavík, vegna þeirra
grunnskólanemenda sem detta út úr
skóla af ýmsum ástæðum.
Framhaldsskólastigið
1. Nefnd um innra starf framhaldsskól-
ans hefur starfað frá því um áramót og
er ætlað að skila skýrslu nú fyrri hluta
sumars. Við gildistöku nýrra laga um
framhaldsskólastigið við upphaf árs
1989 varð í raun breyting á eðli fram-
haldsskólans í þá veru að hann er nú
fyrir alla. Allir nemendur sem lokið
hafa grunnskólanámi eiga nú rétt á að
setjast í framhaldsskóla. Hingað til
hefur námsframboð framhaldsskólans
aðeins miðast við þarfir hluta hvers
árgangs. Námsframboðið hefur verið
iðnnám, nám til stúdentsprófs og
tveggja ára námsbrautir sem flestar
hafa verið hugsaðar sem aðfaranám að
sérskólum. Mikil þörf er á að skólinn
bjóði fram mun fjölbreyttara nám en
nú er, styttri og lengri námsleiðir sem
bæði eru byggðar upp af bóklegu námi
í skóla, Iistiðkun, verklegri þjálfun og
námi úti í atvinnulífinu.
Verkefni nefndarinnar er m.a. að
gera tillögur um breytta starfshætti og
nýjar námsbrautir einkum með tilliti
til þess hóps nemenda sem ekki virðist
hafa getað nýtt sér nám framhalds-
skólans eins og málum hans er nú
háttað. Þá skal gera tillögur um leiðir
til þess að flétta saman nám og starf,
gera tillögur um hvernig megi stuðla
að endurnýjun og nýbreytni. Fjalla á
um námsefnisgerð, námsstjórn, sér-
kennslu, heilsugæslu og sálfræðiþjón-
ustu, gera tillögur um fyrirkomulag
námsráðgjafar og námskrárgerðar,
taka starfsnám til athugunar og gefa
ábendingar um kröfur til aðstöðu og
húsnæðis.
Á vegum nefndarinnar er starfandi
hópur sem fjallar sérstaklega um iðn-
menntun. Honum er ætlað að koma
með tillögur um úrbætur ognýjar
áherslur og leiðir í iðnmenntun.
2. í vetur hafa verið starfandi átta starfs-
hópar við að semja reglugerð við
nýju framhaldsskólalögin. í þessum
starfshópi eru kennarar, skólastjórn-
endur og starfsmenn ráðuneytisins. í
hópi um starfsmenntun eru einnig
fulltrúar atvinnulífins. Stefnt er að
útgáfu þessarar reglugerðar nú í
sumar.
3. Núverandi menntamálaráðherra hef-
ur lagt fram á alþingi frumvarp til
breytinga á framhaldsskólalögunum.
Fær fela m.a, í sér breytingar á skip-
an skólanefnda og er gert ráð fyrir að
kennarar og nemendur fái aðild að
nefndunum, fjárhagslegt sjálfstæði
skóla er aukið með ákvæði um að
greiða skuli fjárframlög til reksturs
beint til skóla samkvæmt samningi
12