Réttur


Réttur - 01.01.1989, Page 14

Réttur - 01.01.1989, Page 14
lensku- og tungumálakennara. Hér er um að ræða nám sem fer fram samhliða starfi úti í skólunum sjálf- um undir handleiðslu kennara sem hlotið hefur sérstaka þjálfun þar til. Reiknað er með að slík þjálfun fari af stað næsta haust. 9. Mörkuð hefur verið stefna um það að framhaldsdeilir við grunnskóla teng- ist faglega einhverjum framhalds- skóla. Nú er unnið að því að fram- haldsdeildin á Kirkjubæjarklaustri sem býður fram nám í fiskeldi tengist Fjölbrautaskóla Suðurlands í fagleg- um efnum. 10. í vetur hafa staðið yfir endurbætur á Menntaskólanum við Hamrahlíð til að stórbæta aðgengi hreyfihamlaðra. 11. Á 100 ára afmæli Kennarasamtaka á íslandi hinn 23. febr. var Kennara- sambandi íslands og Hinu ísl. kenn- arafélagi gefinn gamli Kennaraskól- inn við Laufásveg undir starfsemi sína. Háskólastig 1. Að undanförnu hefur farið fram mikil umræða um hvað sé háskóli og hvernig skilgreina skuli háskólastigið. Nýir skólar og aukið námsframboð að loknu framhaldsskólanámi kalla á nýj- ar skilgreiningar og jafnvel á breytt skipulag. Pessi umræða fer ekki aðeins fram hér á landi heldur einnig í flest- um nágrannalöndum okkar. Því hefur verið ákveðið að halda á vegum ráðuneytisins ráðstefnu um háskólastigið 26. maí n.k. Markmið ráðstefnunnar er að efna til umræðu um þessi mál. F*ví var leitað til nokk- urra einstaklinga, bæði skólamanna og fólks úr öðrum geirum atvinnulífins, til þess að reifa hugmyndir sínar í þessum efnum. Voru þau m.a. beðin að svara ákveðnum spurningum um háskólastigið og fjalla um hugmyndir sínar um inntökuskilyrði, útskrift, rannsóknir, staðsetningu mennta- stofnana, þarfir atvinnulífsins, þörf fyrir samræmda löggjöf o.fl. Reiknað er með að nýta niðurstöður ráðstefn- unnar í frekari stefnumótun um fram- tíð þessa skólastigs. 2. Háskóla íslands hefur verið veitt heimild til þess að starfrækja masters- nám í verkfræðideild, raunvísinda- deild og félagsvísindadeild. 3. Samþykkt hafa verið lög á alþingi sem stuðla að auknu sjálfstæði skólans, m.a. með tilliti til ráðningar kennara. 4. Hér að ofan var getið um nám fyrir stærðfræðikennara við H.í. og tillögur að námi í hagnýtri fjölmiðlun. 5. Hafinn er undirbúningur að gerð þró- unaráætlunar fyrir Kennaraháskóla íslands. 6. Hér að framan var getið um dreifða og sveigjanlega kennaramenntun á veg- um KHÍ. 7. Ákveðið hefur verið að stofna til kennslu í sjvarútvegsfræðum við Há- skólann á Akureyri frá næstu áramót- um. 8. Unnið er að endurmati á því starfi sem fram fer í Tækniskóla íslands. 9. Skýrsla um starfsemi Tilraunastöðvar Háskóla íslands á Keldum liggur fyrir. Skipuð hefur verið nefnd sem á að skila lagafrumvarpi síðar í sumar um starfsemi tilraunastöðvarinnar. Fullorðinsfræðsla - símenntun í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar stendur að fullorðinsfræðsla, símenntun og endurmenntun veröi efld. Fullorðinsfræðsla hvers konar, sí- 14

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.