Morgunblaðið - 24.01.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.01.2006, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ HÁDEGISFUNDARÖÐ Sagnfræð- ingafélags Íslands „Hvað er út- rás?“ heldur áfram í dag, 24. jan- úar. Þór Sigfússon hagfræðingur flytur erindi sem nefnist „Útrás og innrás í sögulegu ljósi“. Í er- indinu mun Þór rekja hin stór- auknu umsvif íslenskra fyrir- tækja í útlöndum undanfarin ár og vekja máls á sögulegum for- sendum þeirra. Einnig mun hann fjalla um aukna „innrás“ erlendra fyr- irtækja í íslenskt hagkerfi. Há- degisfundurinn er að venju í Þjóðminjasafni Íslands og hefst kl. 12.10. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Upphafserindi Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands í fundaröðinni vakti mikla athygli og talsvert umtal. Forseti fór fögrum orðum um „útrásina“ og verður fróðlegt að heyra næst mat hagfræðings á eðli hennar og umfangi. Þór Sigfússon er for- stjóri Sjóvár. Hann er með meist- aragráðu í hagfræði og hefur skrifað þrjár bækur um Ísland í útrás og alþjóðavæðingu. Dagskrá fundaraðarinnar „Hvað er útrás?“ má finna á heimasíðu Sagnfræðingafélags Ís- lands, www.akademia.is/saga. Sagnfræði | Hádeg- isfundaröð Sagnfræð- ingafélags Íslands Útrás og innrás í sögu- legu ljósi Þegar maður heyrir heitið Vormenn Íslands þá berst hugurinn að upp- græðslu og nýjum straumum, eins og reyndar „aldamótamaðurinn“ og „skólaskáldið“ Guðmundur Guð- mundsson hafði í huga er hann orti „Vormenn Íslands, yðar bíða eyði- flákar, heiðalönd …“. Með þetta í brjósti bjóst ég við að hinir nýju vormenn mættu í tón- aregni sem yrði eins og gróðrarskúr er „kæmi grænum skógi að skrýða“ og bætti nýjum litum í söngvaflór- una. Ég er einn af þeim sem er orðinn löngu leiður á þessari eilífðar síbylju markaðsraddanna er segja, „fólk vill bara fá það sem það þekkir“ og þessa eilífu fákeppni á söngskrám okkar bestu söngvara og bíð eftir fleiri ræktunarmönnum með nýjar plöntur og græðlinga, eða viljum við bara hafa þetta allt eins og láta sölu- menn og markaðshegra ákveða valið fyrir okkur? Þetta hefur ekkert með mína tón- smíðaáráttu að gera, en spyrja má hvernig umhorfs væri ef markaður- inn hefði fyrir 200 árum sagt að nú væri fullkomin tónlist komin fram með Mozart og engin þörf að semja meir! Ég fer ekki í neina launkofa með það að mínu ágætu vinir Jóhann Friðgeir, Ólafur Kjartan og Óskar voru ekki „vormenn“ ferskra vinda, en þeir voru bráðskemmtilegir, fóru í sinni fyndni stundum yfir mörk smekks míns, en það er engum blöð- um um það að fletta að um þessa þremenninga leika hressir vindar og flutningur þeirra og Jónasar Þóris oft hinn glanslegasti. Óskar byrjaði að syngja Vín borg minna drauma eftir Rudolf Siec- zynski af miklu næmi, en bestur var þó söngur hans í Una furtiva lagrima eftir Donizietti, sú aría er eins og töl- uð út úr hans hjarta. Jóhann rataði glæsilega, mikið troðna, slóð stórtenóranna, enda hlýtur maður með svo frábæran ten- ór að freistast til þess. Nessun Dorma var ein af þessum freist- ingum og mjög glæsilega flutt. Röddin þolir mikið þan, en er við- kvæmari í söng á meðalstyrk. Ólafur er bæði voldugur og áhrifa- mikill túlkandi, svo ekki sé talað um hans einstaka skopskyn. Hann söng fuglafangaraaríu Papageno úr Töfraflautunni eins og best verður á kosið. Jónasi Þóri tókst vel að skila hlut- verki píanósins sem heillar hljóm- sveitar á tónleikunum og var alltaf í mjög góðu sambandi við söngvarana. Ólafur Kjartan má stundum gæta sín á að syngja ekki of sterkt, eins og áberandi var í Sólsetursljóði Bjarna Þorsteinssonar. sem Óskar söng á móti honum. Fallegt lag eftir Jónas Þóri hljóm- aði vel og dró aðeins úr einsleitni efnisskrárinnar. Mér fannst raunar það hljóma sem mótsögn er Óskar nefndi að mikill vandi væri að velja úr urmuli fallegra íslenskra sönglaga fyrir svona tónleika, þar sem valið að þessu sinni var fremur hug- myndalítið. Það á að vera regla hjá tónlist- arfólki að leggja fram prentaða efn- isskrá með heitum laga og höfunda fyrir tónleika, því það hefur ekki síst gildi fyrir áheyrendur eftir tónleika, en hér var því ekki til að dreifa. Miklu og langvinnu lófaklappi var svarað með tveimur aukalögum. Ég er viss um að nýstárlegri efnis- skrá hefði einnig fengið slíkar við- tökur. Ljósmynd/Guðbjörg Magnúsdóttir Vormenn Íslands, voru að þessu sinni „ekki „vormenn“ ferskra vinda,“ en engu að síður „bráðskemmtilegir,“ segir í umsögninni. Vormenn Íslands syngja inn þorra TÓNLIST Akureyrarkirkja Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór Ólafur Kjartan Sigurðsson, baritón Óskar Pétursson, tenór. Jónas Þórir á pí- anó sungu aríur úr óperum, ásamt erlend- um og innlendum lögum eftir: Árna Thor- steinsson, Bjarna Þorsteinsson, Jónas Þórir, Karl O Runólfsson og Sigvalda Kaldalóns. Laugardaginn 21. janúar kl. 17. Vormenn Íslands Jón Hlöðver Áskelsson AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Fréttir á SMS Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. ÖSKUBUSKA - La Cenerentola eftir ROSSINI Frumsýning sun.5. feb. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS 2. sýn. fös. 10. feb. kl. 20 – 3. sýn. sun. 12. feb. kl. 20 4. sýn. sun. 19. feb. kl. 20 – 5. sýn. fös. 24. feb. kl. 20 AÐEINS SÝND Í FEBRÚAR OGMARS www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Stóra svið SALKA VALKA Fi 26/1 kl. 20 Fi 2/2 kl. 20 AUKASÝNING Fi 9/2 kl. 20 AUKASÝNING WOYZECK Su 29/1 kl. 20 UPPSELT! AUKASÝNINGAR Lau 11/2 kl. 20 Su 12/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 20 Lau 18/2 kl. 20 KALLI Á ÞAKINU Lau 4/2 kl. 14 UPPS. Su 5/2 kl. 14 UPPS. AUKASÝNING Su 5/2 Kl. 17. CARMEN Fö 27/1 kl. 20 Græn kort Lau 28/1 kl. 20 Blá kort Fö 3/2 kl. 20 Lau 4/2 kl. 20 Fö 10/2 kl. 20 RONJA RÆNINGJADÓTTIR Lau 11/2 kl. 14 FORSÝNING UPPSELT Su 12/2 kl. 14 FRUMSÝNING UPPSELT Nýja svið/Litla svið MANNTAFL Fö 3/2 kl. 20 AUKASÝNING ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 16/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 20 UPPSELT Lau 25/2 kl. 20 Su 26/2 kl. 20 BELGÍSKA KONGÓ Lau 28/1 kl. 20 UPPSELT Su 29/1 kl. 20 Mi 1/2 kl 20 UPPS. Lau 4/2 kl. 20 UPPS. Su 5/2 kl. 20 Fi 9/2 kl. 20 Fö 10/2 kl. 20 Lau 11/2 kl. 20 GLÆPUR GEGN DISKÓINU Fi 26/1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20 Fi 2/2 kl. 20 Su 12/2 kl. 20 Naglinn Fö 27/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 Fö 3/2 kl. 20 Lau 4/2 kl. 20 Lau 11/2 kl. 20 Su 12/2 kl. 20 Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Fullkomið brúðkaup - heldur áfram! Fös. 27. jan. kl. 20 Örfá sæti laus Lau. 28. jan. kl. 19 Örfá sæti laus Lau. 28. jan. kl. 22 AUKASÝNING Fös. 3. feb. kl. 20 Örfá sæti laus Lau. 4. feb. kl. 19 Nokkur sæti laus Lau. 4. feb. kl. 22 AUKASÝNING Fös. 10. feb.kl. 20 Laus sæti 11/2, 18/2. - Síðustu sýningar Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu. Allir norður! Miðasalan opin virka daga kl. 13-17 og frá kl. 15 á laugardögum. Sýnt á NASA við Austurvöll Fimmtudagur 26 . janúar - Örfá sæti Föstudagur 27 . janúar - Örfá sæti Laugardagur 28 . janúar - Örfá sæti Fimmtudagur 2 . febrúar - Laus sæti Föstudagur 3 . febrúar - Laus sæti Laugardagur 4 . febrúar - Laus sæti Fimmtudagur 9 . febrúar - Laus sæti Húsið opnar kl. 20:00 - Sýningar hefjast kl. 20:30 Miðasala í verslunum Skífunnar, www.midi.is og í síma: 575 1550 Ódauðlegi Mozart! Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einsöngvarar: Danielle Halbwachs, Gunnar Guðbjörnsson Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Davíð Ólafsson Kór: Hljómeyki W.A. Mozart ::: Mildi Títusar FIMMTUDAGINN 26. JANÚAR KL. 19.30 – ÖRFÁ SÆTI LAUS rauð tónleikaröð í háskólabíói SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. SÝNT Í IÐNÓ KL. 20 MIÐASALA: WWW.MIDI.IS OG Í IÐNÓ S. 562 9700 UPPSELT örfá sæti laus örfá sæti laus laus sæti UPPSELT örfá sæti laus laugardagur sunnudagur laugardagur sunnudagur föstudagur laugardagur 28.01 29.01 04.02 05.02 10.02 11.02

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.