Morgunblaðið - 24.01.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.01.2006, Blaðsíða 39
Sími 553 2075 Sýnd kl. 6 ísl talSýnd kl. 10 FEITASTI GRÍNSMELLUR ÁRSINS! Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6 og 8 Eins og það sé ekki nóg að ala upp 12 börn Prófaðu að fara með þau öll í fríið! „...falleg og skemmtileg fjölskyldumynd...“ MMJ Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper. DÖJ, Kvikmyndir.com „Sam Mendez hefur sannað sig áður og skilar hér stórgóðri mynd.“ „...mjög vönduð og metnaðarfull mynd...“ e e e e VJV, Topp5.is JUST FRIENDS FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRA "CHICAGO" STÓRKOSTLEG SAGA UM ÁSTIR OG ÁTÖK BYGGÐ Á HINNI ÓGLEYMANLEGU METSÖLUBÓK EFTIR ARTHUR GOLDEN 2GOLDEN GLOBE TILNEFNINGARBESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI: ZIYI ZHANGBESTA KVIKMYNDATÓNLIST: JOHN WILLIAMS Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 JUST FRIENDS M YKKUR HENTAR **** 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Sími - 551 9000 eeee “…mikið og skemmti- legt sjónarspil...” H.J. / MBL BESTA TÓNLISTIN, JOHN WILLIAMS GOLDEN GLOBE VERÐLAUN eee H.J. MBL Sprenghlægilegt framhald. Steve Martin fer enn og aftur á kostum! „Cheaper by the Dozen 2 er falleg og skemmtileg fjölskyldumynd, sem heppnast hreint ágætlega“ MMJ Kvikmyndir.com eeee Ó.Ö.H. / DV A.G. / BLAÐIÐ eee D.Ö.J. / Kvikmyndir.com BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA MEMOIRS OF A GEISHA kl. 6 og 9 BROTHERS GRIMM kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA eee Kvikmyndir.com MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 39 Á TÍMUM þegar konur á Vest- urlöndum eru farnar að eignast æ færri börn og pör hefja barneignir mun seinna vegna aukinna umsvifa kvenna í atvinnulífinu, teflir Holly- wood fram gamanmyndaröð sem fjallar um hamingjusama en þó ögn lúna foreldra tólf barna. Þetta er Baker-fjölskyldan sem ferðast um í litlum langferðabílum og hef- ur hagsýnina að leiðarljósi. Hér má spyrja hvort þessi staðl- aða gamanmynd, sem er eins og nokkurs konar dæmisaga um það hversu fjölskyldugildin eru nú ómetanleg, þrátt fyrir allan hama- ganginn sem fylgir barnauppeldi, sé hugsuð sem nokkurs konar mót- vægi við þróunina sem á sér stað hjá væntanlegum áhorfendum hennar. Fyrri myndin í þessari nýju röð um Baker-fjölskylduna kom út árið 2003, og er hún byggð á sam- nefndri og sannsögulegri bók um Gilbreth-fjölskylduna, foreldra og börnin þeirra tólf sem uppi voru á fyrri hluta 20. aldar. Vinsæl gam- anmynd var gerð eftir bókinni árið 1950 – á tíma þegar afþreying- armenningin hvatti konur til þess að vera nú heima og sinna heimili og barnauppeldi og hleypa karl- mönnunum aftur inn á vinnumark- aðinn eftir stríðsárin. Talsvert vatn hefur runnið til sjávar frá þeirri fjölskylduímynd sem dregin er upp í útgáfunni frá árinu 1950 en engu að síður er Hagsýnir foreldrar 2 furðanlega klén og væmin á bak við ærsla- ganginn sem heldur fjörinu gang- andi út í gegnum myndina. Steve Martin sem leikur höfuð Baker- fjölskyldunnar, mætir hér erki- óvini sínum frá fyrri tíð, Jimmy Murtaugh (Eugene Levy), sem komið hefur ár sinni vel fyrir borð í lífinu en á þó aðeins níu börn og er því uppfullur af minnimátt- arkennd gagnvart Baker. Þeir Martin og Levy fara létt með það að bregða sér í þær stöðluðu Hollywood-gamanrullur sem myndin kallar á og sama er að segja um aðra leikara í myndinni, unga sem aldna. Fyrir vikið er fátt í gamanleiknum sem kemur manni á óvart, þó svo að allt sé fagmann- lega unnið samkvæmt kúnstar- innar reglum. Eftir kúnstar- innar reglum KVIKMYNDIR Laugarásbíó, Smárabíó og Borg- arbíó Akureyri Leikstjórn: Adam Shankman. Aðahlut- verk: Steve Martin, Bonnie Hunt, Eugene Levy, Nora Baker, Hilary Duff o.fl. Banda- ríkin, 94 mín. Cheaper by the Dozen 2 / Hagsýnir for- eldrar 2  „Engu að síður er Hagsýnir foreldrar 2 furðanlega klén og væmin á bak við ærslaganginum sem heldur fjörinu gangandi út í gegnum myndina.“ Heiða Jóhannsdóttir Kvikmyndin Da Vinci-lykillinn í leikstjórn Rons How-ards verður opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í Frakklandi 17. maí næstkomandi. Tveimur dög- um síðar verður myndin tekin til almennra sýninga um all- an heim. Myndin mun ekki keppa til verðlauna á hátíðinni. Framleiðendur myndarinnar, Brian Grazer og John Calley, greindu frá þessu um helgina. Bókin, sem kvikmyndin er gerð eftir, hefur selst í 30 milljónum eintaka um allan heim og verið þýdd á 40 tungumál. Það eru þau Tom Hanks, Audrey Tautou og Jean Reno sem fara með aðalhlutverk í myndinni. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.