Morgunblaðið - 03.02.2006, Page 2
Morgunblaðið/RAX
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við nýtt knatt-
spyrnuhús á Jaðarsbökkum á Akranesi. Ganga fram-
kvæmdir vel. Þegar Morgunblaðið bar að garði var
stóreflis krani að hífa upp einn bogann í burðarvirki
hússins, en eins og sjá má mátti maðurinn á myndinni
Nýtt knattspyrnuhús rís á Akranesi
hafa sig allan við að rétta bogann af enda 7 tonn á
þyngd.
Búist er við að burðarvirkið verði komið upp næsta
fimmtudag og klæðning hefjist þá. Stefnt er að því að
opna húsið í sumarbyrjun.
UMFERÐARÓHÖPPUM með
slysum á fólki hefur fækkað að
meðaltali um 27% í þeim hverfum
Reykjavíkurborgar þar sem 30 km
hámarkshraða hefur verið komið á,
og alvarlegum slysum fækkað um
62%.
Þetta kemur fram í greiningu
Stefáns Agnars Finnssonar verk-
fræðings á umferðaróhöppum í 30
km hverfum.
Óhöppum almennt hefur fjölgað í
takt við fjölgun bíla í hverfunum,
og er mikil fylgni milli aukinnar
fólksbílaeignar og aukningar á
ákveðnum flokkum umferðar-
óhappa. Fram kemur í skýrslu
Stefáns um málið að í 30 km hverf-
um fjölgi umferðaróhöppum um
82%, og aftanákeyrslur, óhöpp þeg-
ar ekið er framan á bíl, óhöpp þeg-
ar ekið er á kyrrstæða bíla og þeg-
ar ekið er á hlut eða dýr séu þar
algeng.
Aukin bílaeign
Þessa aukningu eignartjóns-
óhappa má greinilega eingöngu
rekja til aukinnar bílaeignar, bæði í
30 km hverfum og á samanburð-
argötum, að mati skýrsluhöfundar.
Unnið hefur verið að gerð 30 km
hverfa í Reykjavík árlega frá árinu
1995, og hefur 50–60 milljónum
króna verið varið til verkefnisins á
ári hverju, og ráðgert að verja 70
milljónum króna í verkefnið í ár.
Slysum á
fólki fækkar
um 27% í 30
km hverfum
2 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VIÐRÆÐUR Í GANG
Geir H. Haarde utanríkisráðherra
fundaði í gær með Condoleezzu
Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, um framtíð varnarsamstarfs-
ins. Efnislegar viðræður eru nú
hafnar að nýju af fullum þunga.
Óttast átök
Óttast er að í dag færist enn harka
í deiluna um skopteikningarnar af
Múhameð spámanni. Gæti soðið upp
úr eftir föstudagsbænir ef öfgamenn
nota tækifærið til að æsa eldana en
sumir þeirra hóta Dönum og fleiri
Evrópuþjóðum sjálfsmorðsárásum.
Skiptar skoðanir eru í Evrópu, sum-
ir leggja áherslu á að blaðið Jyl-
lands-Posten hafi storkað múslímum
með myndbirtingunni en aðrir segja
brýnt að verja tjáningarfrelsið.
Mokfiskirí við Grímsey
Vel veiðist nú við Grímsey, og
segja sjómenn að hægt hafi verið að
róa hvern einasta dag frá því um
miðjan janúar, og sumir bátar hafi
náð að tvífylla sig yfir daginn.
SA hafnar breytingum
Samtök atvinnulífsins höfnuðu í
gær alfarið að ræða breytingar á
kjarasamningum SA og lands-
sambanda ASÍ, í kjölfar ákvörðunar
launanefndar sveitarfélaganna um
að hækka laun láglaunahópa.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 28
Fréttaskýring 8 Viðhorf 30
Úr verinu 13 Minningar 32/41
Viðskipti 13 Myndasögur 44
Erlent 16/17 Dagbók 44/47
Minn staður 18 Víkverji 44
Akureyri 20 Staður og stund 46
Suðurnes 21 Leikhús 48
Austurland 21 Bíó 50/53
Daglegt líf 22/23 Ljósvakamiðlar 54
Menning 24, 48/53 Veður 55
Umræðan 26/31 Staksteinar 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
bæklingurin Sumarsól 2006 frá
Úrvali-Útsýn.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók | Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Kynning um helgina
áður: 1.670
helgartilboð: 1.190
Daimterta
M
IX
A
•
fí
t
•
6
0
0
5
0
HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær ís-
lenska ríkið af 57 milljóna króna
kröfu drengs sem fæddist með
heilalömun árið 1992 og töldu tals-
menn hans að læknamistök hefðu
valdið fötlun hans. Með dóminum
var niðurstaða Héraðsdóms
Reykjavíkur staðfest.
Móðir drengsins hafði skömmu
fyrir fæðinguna þrívegis leitað til
spítalans vegna blæðinga og blóð-
leitrar útferðar auk þess sem hún
óttaðist að hún væri að missa leg-
vatn. Eftir fæðinguna kom í ljós að
barnið hafði orðið fyrir súrefnis-
skorti eða blóðflæðitruflunum sem
leiddu til heilalömunar.
Í dómi Hæstaréttar segir að fyrir
héraðsdómi hafi staðhæfingar um
mistök starfsmanna spítalans ekki
verið reistar á sérfræðilegum gögn-
um. Með ítarlegri umfjöllun í hér-
aðsdómi, sem skipaður var sérfróð-
um meðdómsmönnum, hafi verið
komist að þeirri niðurstöðu að
vinnubrögð starfsmanna spítalans
við þær skoðanir, sem fram fóru
dagana fyrir fæðinguna, hefðu verið
eðlileg og þær rannsóknir, sem þá
voru gerðar, hefðu ekki gefið til
kynna að legvatn hefði þá verið far-
ið. Þá var í héraðsdómi talið að ekki
hefðu verið gerð mistök við fæð-
inguna og að barnið hefði fengið
alla þá umönnun og læknishjálp
sem unnt var að veita eftir hana.
Hæstiréttur vísaði til þess að nið-
urstöðu héraðsdóms hefði ekki hefði
verið hnekkt með matsgerð dóm-
kvaddra manna eða á annan hátt og
að stefnendur þyrftu að bera sönn-
unarbyrðina fyrir því að starfs-
mönnum spítalans hefðu orðið á
mistök.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Árni
Kolbeinsson, Garðar Gíslason,
Markús Sigurbjörnsson og Ólafur
Börkur Þorvaldsson.
Guðmundur Kristjánsson hrl. og
Ólafur Eiríksson hdl. fluttu málið
fyrir hönd drengsins og Einar Karl
Hallvarðsson hrl. fyrir íslenska rík-
ið.
Læknamistök við fæð-
ingu talin ósönnuð
Hæstiréttur sýknar ríkið af 57 milljóna króna kröfu
hinn 1. október verða svo samn-
ingar leikskólakennara lausir, segir
Steinunn Valdís. Hún segist hafa
trú á því, eftir samtöl við leikskóla-
stjóra og formann Félags leikskóla-
kennara að þessar aðgerðir dugi til
að slá á þá óánægju sem verið hef-
ur á leikskólum borgarinnar.
Skapi ró og frið
„Ég hef trú á því að bæði þetta
og svo þær breytingar sem við
gerðum gagnvart ófaglærða fólkinu
á leikskólunum geri það að verkum
að fólk segi ekki upp og einnig að
fólk komi frekar inn í þessi störf.
Síðast en ekki síst vonast ég til
þess að þetta skapi ró og frið inni á
þessum vinnustöðum,“ segir Stein-
unn Valdís.
REYKJAVÍKURBORG mun nýta
að fullu heimild Launanefndar
sveitarfélaganna til þess að bæta
kjör leikskólakennara í borginni,
en tillaga Steinunnar Valdísar Ósk-
arsdóttur borgarstjóra þar að lút-
andi var samþykkt í borgarráði í
gær.
Leikskólakennarar munu hækka
um fjóra launaflokka, auk þess sem
þeir fá mánaðarlega viðbótar-
greiðslu að upphæð 12.600 kr.
Deildarstjórar og aðstoðarleik-
skólastjórar hækka um fimm
flokka, auk þess sem þeir fá 14.700
kr. mánaðarlega. Ákvörðunin nær
ekki til leikskólastjóra og annarra
sem eru á fastlaunasamningum.
Breytingarnar gilda frá 1. janúar
sl. til og með 30. september nk., en
Laun leikskóla-
kennara í borginni
verða hækkuð
DORRIT Moussaieff forsetafrú
fékk aðsvif í upphafi afhendingar
Íslensku bókmenntaverðlaunanna á
Bessastöðum
síðdegis í gær.
Dorrit og
Ólafur Ragnar
Grímsson tóku á
móti gestum
þegar Íslensku
bókmenntaverð-
launin voru af-
hent við hátíð-
lega athöfn.
Samkvæmt upplýsingum frá Örn-
ólfi Thorssyni forsetaritara fékk
forsetafrúin læknisaðstoð í gær og
hvíldist á Bessastöðum. Hún mun
gangast undir læknisrannsókn í
dag.
Forsetafrúin
fékk aðsvif
♦♦♦