Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 13
ÚR VERINU
Neskaupstaður | „Þetta er stór og
falleg loðna“ segir Þorsteinn Ingv-
arsson útibússtjóri hjá Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins í Nes-
kaupstað þar sem hann skoðaði
loðnuna sem Beitir NK kom með
til frystingar hjá SVN í gærmorg-
un. Um áratugaskeið hefur starfs-
fólk Rf í Neskaupstað þjónustað
framleiðendur og söluaðila og tek-
ið út loðnuna sem berst að landi.
M.a. er kynjahlutfall, hrognafyll-
ing, áta, stærð, fitu- og þurrefn-
isinnihald loðnunnar skoðað. Þor-
steinn var fljótur að kynflokka
loðnuna og segir það nokkuð auð-
velt. „Það er hægt að flokka
loðnuna næstum blindandi enda
eru hængarnir oftast miklu
stinnari viðkomu“. Í þetta sinni
reyndist loðnan að mestu hængar,
þá er dálítil áta í loðnunni og
hrognafyllingin er um 9,5% „sem
er mjög eðlilegt miðað við árs-
tíma,“ sagði Þorsteinn. Beitir
NK-123 kom í gærmorgun með
um 600 tonnum af fallegri loðnu til
frystingar í fiskiðjuveri Síldar-
vinnslunnar hf. Börkur NK-122
kom svo rétt á eftir með með rúm-
lega 850 tonn og beið eftir löndun.
Reiknað var með að stærsti
hluti loðnunnar færi til frystingar
og verður unnið á vöktum við
frystinguna. Þokkaleg veiði var í
fyrrakvöld og fram á nóttina.
Skipin voru þá að veiðum rétt
norðan við litla dýpið í Reyðar-
fjarðardýpinu í kantinum þar.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Hrognin Lilja Hulda Auðunsdóttir, starfsmaður hjá
Rf., skoðar hrognafyllinguna, en hún er nú nálægt 9%.
Rannsóknir Hængurinn er stinnari: Þorsteinn Ingv-
arsson kynflokkar loðnuna og segir það einfalt verk.
Stór og falleg loðna
SAMEINING þriggja stórra lax-
eldisfyrirtækja, Pan Fish, Fjord
Seafood og Marine Harvest er
hugsanlega á döfinni. Frá þessu
skýrðu erlendir fjölmiðlar í gær.
Stór hluthafi í Pan Fish (markaðs-
virði 3,4 ma.NOK) og Fjord Sea-
food (markaðsvirði 3,2 ma.NOK) er
norski athafnamaðurinn John Fre-
driksen og talið er að hann hafi
áhuga á að sameina félögin tvö og
hollenska félagið Marine Harvest.
Pan Fish og Fjord eru bæði
skráð í Kauphöllinni í Osló en Mar-
ine Harvest, sem er stærsti laxeld-
isframleiðandi í heims, hefur óskað
eftir skráningu í Osló síðar á árinu.
Ef af sameiningu verður mun árleg
framleiðsla á laxi verða nálægt 275
þús. tonnum, það jafngildir ríflega
20% af áætlaðri heimsframleiðslu á
þessu ári.
Rétt er þó að geta þess að óljóst
er hvort samkeppnisyfirvöld myndu
samþykkja samrunann í ljósi þess
hve stórt sameinað félag yrði.
Fjallað var um þetta í Morg-
unkorni Íslandsbanka í gær og
sagði þar svo: „Heimsmarkaðsverð
á eldislaxi hækkaði mjög á síðasta
ári (20%) og jókst áhugi fjárfesta á
hlutabréfum í eldisfélögum í kjöl-
farið. Hlutabréf eldisfyrirtækjanna
hafa hækkað umtalsvert frá því
laxaverðið fór að hækka á fyrrihluta
nýliðins árs. Afkoma eldisfyrirtækj-
anna í fyrra var mjög góð og gera
spár ráð fyrir því að laxaverð muni
haldast hátt fram eftir þessu ári.
Verðsveiflur á laxaafurðum hafa þó
verið mjög miklar undanfarin miss-
eri.“
Nýr laxeldisrisi í fæðingu?
Scanpix
Laxeldi Hugsanleg framleiðsla fyrirtækjanna þriggja gæti numið 275.000
tonnum á ári. Það er um 20% af áætlaðri framleiðslu í öllum heiminum.
SÆBLÓM ehf. útgerðarfyrirtæki í Hafnarfirði
keypti nýlega norska togarann Havbryn frá Ála-
sundi og kom hann til Hafnarfjarðar fyrir jól til
breytinga, einkum á vinnslulínu skipsins.
Togarinn er systurskip Þerneyjar RE sem HB
Grandi gerir út en alls munu hafa verið smíðaðir
22 tveir togarar í raðsmíðaverkefni sem kallaðist
Sterkoder fyrir rússneska útgerðaraðila sem var
fjármagnað í Bandaríkjunum. Erfiðleikar urðu
með útgerð skipanna í Rússlandi og hafa þau
verið seld annað á undanförnum árum.
Eigendur Sæblóms ehf. áttu áður hlut í nami-
bíska sjávarútvegsfyrirtækinu Seaflower sem
gerði út nokkra togara en fyrsti togarinn sem
fór til Namibíu var einmitt með REX nafninu,
einn af fyrrum Rán HF togurunum. Íslensku
eigendurnir seldu sinn hlut í Seaflower fyrir
nokkru síðan en eru nú komnir með nýtt skip
sem heldur suður eftir innan skamms eftir
breytingar.
Nýr Rex HF 24 til Namibíu
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
www.toyota.is
Sedan
Verð frá 1.725.000 kr.
Wagon
Verð frá 1.775.000 kr.
Hatchback
Verð frá 1.685.000 kr.
Þú getur einnig fengið Corolla Verso 7 manna
Verð frá 2.240.000 kr.