Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                            !"# $%%&$     ' () *(#&          ACTAVIS Group hlaut Þekkingarverðlaun Félags við- skiptafræðinga og hagfræðinga sem afhent voru í gær og er það í annað skipti sem félagið hlýtur verðlaunin en það gerðist einnig fyrir tveimur árum. Actavis var eitt þriggja fyrirtækja sem tilnefnd voru til verðlaunanna, hin voru Avion Group og Bakkavör Group en félögin eiga það öll sameiginlegt að hafa vax- ið verulega á síðustu misserum. Verðlaunin voru veitt samhliða þekkingardeginum sem FVH stendur fyrir en þema þekkingardagsins í ár var stefnumótun og því voru verðlaunin veitt fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr á sviði stefnumótunar. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Ró- berti Wessman, forstjóra Actavis, verðlaunin og sagði við það tækifæri meðal annars að stórkostlegt hefði verið að fylgjast með fyrirtækjunum þremur. Þau hefðu öll vaxið gríðarlega á undanförnum árum. Þetta er í sjötta sinn sem verðlaunin eru veitt. Fyr- irtækin sem hafa hlotið þau eru: Íslensk erfðagreining (2000), Marel (2002), Íslandsbanki (2003), Actavis (2004) og KB banki (2005). Hreiðar Már Sigurðarson, forstjóri KB banka, var við sama tækifæri útnefndur viðskiptafræðingur/ hagfræðingur ársins. Morgunblaðið/Kristinn Actavis hlaut Þekkingarverðlaunin ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís- lands í gær námu um 19,7 millj- örðum króna, þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir um 10,4 millj- arða. Mest viðskipti voru með bréf Landsbankans. Mest hækkun varð á bréfum FL Group, 1,8%, en mest lækkun varð á bréfum Avion Group, 2,9%. Úrvals- vísitala aðallista hækkaði um 0,96% og er hún nú 6.377,76 stig. FL Group hækkaði mest ● HAGNAÐUR eftir skatta hjá Spari- sjóði Mýrasýslu var 615,6 milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt til- kynningu til Kauphallar, og er það þrefalt betri afkoma en árið 2004. Vaxtatekjur námu 1,8 milljörðum króna, sem er 51% hækkun milli ára, og vaxtagjöld námu 1,2 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall samstæð- unnar samkvæmt CAD-reglum var 11,0% um áramótin, sem er sama hlutfall og það var 31. desember árið 2004. Þess ber að geta að sjóðurinn eignaðist allt stofnfé í Sparisjóði Ólafsfjarðar í apríl 2005 og í sam- anburðartölum samstæðunnar kem- ur efnahagur þess sparisjóðs að fullu inn. Þreföldun á hagnaði Sparisjóðs Mýrasýslu ● HAGNAÐUR eftir skatta hjá Ís- lenskum verðbréfum hf. (ÍV) var 323,8 milljónir króna á síðasta ári, samanborið við 233,6 milljónir árið áður. Hagnaður fyrir skatta nam 394 milljónum króna. Í tilkynningu frá ÍV segir að arðsemi eigin fjár á árinu 2005 hafi verið 53,8%. Félagið sérhæfir sig á sviði eign- astýringar og stýrir um 75 milljörðum króna fyrir viðskiptamenn sína, sem eru lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fyr- irtæki og einstaklingar. Arðsemi eigin fjár 54% hjá ÍV ● ÞÓR Kristjánsson hefur sagt sig úr stjórn Straums-Burðaráss Fjárfest- ingabanka þar sem hann hefur boðið sig fram til setu í bankaráð Landsbankans á aðalfundi bank- ans á morgun, laugardag. Þetta var tilkynnt til Kauphallarinnar í gær. Úrsögn úr stjórn Straums er háð því að Þór nái kjöri til bankaráðs Landsbankans. Segir sig úr stjórn Straums Þór Kristjánsson ● BRÁÐABIRGÐATÖLUR um verð- mæti útflutnings fyrir janúarmánuð 2006 benda til þess að hann hafi orð- ið 15,4 milljarðar króna og að verð- mæti innflutnings sé 25,5 milljarðar króna. Bráðabirgðatölur fyrir vöru- skiptajöfnuð janúarmánaðar 2006 sýna því 10,1 milljarða króna halla, að því er kemur fram í Hagvísum Hag- stofunnar, sem birtir voru í gær. Tíu milljarða vöruskiptahalli GREININGARFYRIRTÆKIÐ Credit Sights heldur áfram að fjalla um íslensku bankana og á þriðjudaginn sl. var uppgjör Landsbankans tekið til skoðunar. Credit Sights segir uppgjörið áþekkt því sem hinir viðskipta- bankarnir sendu frá sér að því leyti að arðsemi eiginfjár hafi ver- ið mjög há, eða 42%. „Þó svo að kaupin á Teather & Greenwood, Kepler Equities og Marrion Capital hafi haft þar áhrif hefur vöxtur efnahagsreiknings félagsins aðallega stafað af innri vexti, hagnaðaraukning á milli ára skýrist enn sem fyrr af miklum gengishagnaði, sem er nokkuð sem á við um alla íslensku við- skiptabankana,“ segir Credit Sights, sem tengir gengishagnað- inn m.a. við mikla hækkun hluta- bréfa í Kauphöll Íslands. „Við höfum enn áhyggjur af hröðum eignavexti bankans og að hann reiðir sig á gengishagnað og útlán,“ segir Credit Sights enn- fremur, og bætir við að þeir hygg- ist fjalla nánar um Landsbankann eftir að bankinn hefur gert grein fyrir uppgjörinu. Áhyggjur vegna Máttar Jafnframt bætti Credit Sights við umfjöllun sína um Íslands- banka í ljósi stofnunar Máttar, nýs eignarhaldsfélags í eigu bank- ans, Milestone og Sjóvár. Þar ítrekar fyrirtækið áhyggjur þær sem komu fram í fyrri skýrslu þess um íslensku bankana. „Við höfum þegar látið í ljós áhyggjur okkar af skjólleysi ís- lensku bankanna gagnvart hluta- bréfamarkaði og mikilvægi geng- ishagnaðar í afkomu þeirra,“ segir í skýrslunni. Áhyggjur ítrekaðar af íslensku bönkunum                          +, -$ ./(01 "2 ,(/% ./(01 "2 3 %% -!/ ./(01 "2  45/6# "2 7 4 ./(01 "2 8 ./(01 "2 97 #5 #%$ "2  01:$#4 3 #% "2 !40# "2 8 #5 #%$ 97 # "2  /&7 "2 ( $+   $(# "2 9 "2 ,/ 0;0/<30/= /> ?>/"25 #%$ "2 @0/ "2    -$(# ./(01 "2 $%; /% =0/ 97 # "2 ./ #$ "2 A ;1$=? # "2  '+&7 #$+ ./(01 "2 B &/?$ "2 C ,7 #,$+ &,/(7&0; /D44$#4 ;$=,!=$# "2 E$##70,!=$# "2      ! $%&7$ D? "? /= / "2  7>,0/"F7 4 0=0/7 # -"2 "#  $%  'G H= , -$=%2-&/=               < < <  < < < <  3/&D,$#4 "/> "D// -$=%2-&/= < < < <    < <  < < < < < < < <  < < < <   I J < I <J < I <J I  J I J I  J < I  J I <J < I J I J I < J I <J < < < < < I  J < < < < I  J A&$7 /-$=%$1,$  4$# $75(= H 7(%  4K  01 7 2 2 2  2  2 2 22  22  2 2 2  2 2  2 < 2  < <  2 < < < < 2                                            E$=%$1,$ H :62 %/2 A2 L , 040# /7$,$ ?!7$ -$=%$1,              <  < <   < < < <  TÖLUVERÐUR áhugi virðist vera fyrir Iceland Express, sem Kaupþing banki er með í sölumeðferð, og sendu allnokkrir aðil- ar inn óbundin tilboð í félagið en frestur til þess rann út fyrr í vik- unni. Ekki fæst hins vegar uppgefið ná- kvæmlega hversu mörg tilboð bárust. Kaupþing mun nú nota tímann fram yfir næstu helgi til þess að fara yfir þau og meta. Bankinn mun síðan í næstu viku hafa samband við þá kaupendur sem hann velur til frekari viðræðna enda voru óbundnu tilboðin byggð á takmörkuðum upplýsingum. Kaupþing mun taka mið af bæði því verði sem boðið er fyrir Iceland Ex- press og eins af fjárhagslegri getu til- boðsgjafa þegar hann tekur endan- lega afstöðu til þess við hverja verður rætt frekar. Nokkur óbundin til- boð í Iceland Express Í GÆRMORGUN var fyrstu opin- beru skuldabréfaútgáfu Íslands- banka á árinu lokað, en gefin voru út skuldabréf að nafnvirði 250 milljóna sviss- neskra franka (um 12,7 milljarða íslenskra króna) og þau boðin svissneskum fjár- festum til kaups. Ingvar H. Ragn- arsson, forstöðu- maður alþjóðlegr- ar fjármögnunar hjá Íslandsbanka, segir að það sem af er árinu hafi bankinn gefið út skuldabréf fyrir um 30 milljarða króna og að viðtökurnar hafi verið með besta móti. Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær sagði Ingvar að umræða um stöðu íslensku viðskiptabankanna hefði haft einhver áhrif á gengi skuldabréfa þeirra á eftirmarkaði, en ekki hefði reynt á hver áhrifin yrðu á frummarkaði. „Það er ekki hægt að draga álykt- anir um stöðu evrópska markaðarins af útboðinu sem lauk í gær, en að minnsta kosti hefur umræðan ekki haft teljandi áhrif á svissneskum frummarkaði og það er mjög já- kvætt,“ segir Ingvar. Skuldabréfa- útgáfa fyrir 30 milljarða á árinu Ingvar H. Ragnarsson TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hefur á síðustu tveimur dögum selt saman- lagt 36 milljónir hluta í Landsbank- anum á genginu 27,3 annars vegar og 27,5 hins veg- ar. Heildarand- virði viðskiptanna er því 986 milljón- ir króna. TM er fjórði stærsti hluthafi í Landsbankanum á eftir Samson eignarhaldsfélagi, Landsbankanum og Landsbankanum í Lúxemborg samkvæmt nýlegum hluthafalista. Alls á félagið nú um 221 milljón hluta. Guðbjörg M. Matthíasdóttir á sæti í stjórn beggja fyrirtækja. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður TM, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að einfaldlega væri verið að dreifa eignasafni félagsins. Staða okkar í Landsbankanum var orðin það stór að við töldum rétt að grynnka á henni.“ TM losar um milljarð í LÍ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.